Hvað kostar að nota farsímann erlendis?

Þegar GSM-síminn er notaður erlendis er greitt skv. þeirri áskriftarleið sem viðskiptavinur er skráður í.

Almenn verðskrá - Þegar hringt er í þig greiðir þú fyrir millilandasímtalið, en sá sem hringir greiðir hefðbundið símtal (að því gefnu að hann sé á Íslandi).
Vodafone Passport - Þessi þjónusta er eingöngu í boði fyrir þá sem eru með GSM í áskrift. Eitt upphafsgjald og síðan mínútuverð eins og hringt væri heima á Íslandi. Aðeins er rukkað upphafsgjald fyrir móttekin símtöl. Þú nýtir Vodafone Passport gjaldskrána í þeim löndum sem Passport þjónustan gildir (að því gefnu að númerið sé skráð í Vodafone Passport). Skráning kostar ekkert. Nánari upplýsingar má finna hér.

Kynntu þér gjaldskrá símtala erlendis áður en haldið er af stað. Sjá gjaldskrá.