Vodafone

Samsung Galaxy A55

Vörunr. 44687.

Hraði. Kraftur. Nýstárlegur

Fáguð hönnun og kraftmikil myndavél gerir Galaxy A55 5G frábæran síma fyrir næstum alla, með fallegri gler bakhlið og möttum ál ramma, kemur í fjórum fallegum litum.

Skjár og rammi
Elskaðu það sem þú sérð, Galaxy A55 5G skartar 1000 nita björtum 6,6“ Super AMOLED skjá sem færir þér góð áhorfsskilyrði jafnvel úti í sólinni, allar hreyfingar á skjánum verða silki mjúkar með 120Hz endurnýjunartíðni.

Galaxy A55 5G er IP67 ryk- og rakavarinn sem gerir honum kleift að fara á 1 metra dýpi í allt að 30 mínútur í ferskvatni, auk þess er síminn með sterku gleri Corning Gorilla Glass Victus+

Örgjörvi
Skaraðu fram úr með kraftmiklum átta kjarna örgjörvanum í Galaxy A55 5G, tilbúinn fyrir nýjustu kynslóð farsímanets 5G sem mun veita þér meiri hraða og stöðuleika við að vafra á netinu.

Myndavél
Galaxy A55 5G skartar 50MP háskerpu OIS myndavél með sjálfvirkum fókus og tekur skruðningslaus myndbönd, með næturmyndatöku getur þú náð ótrúlegum myndum og fangað hin minnstu smáatriði með macro myndavélinni. Með ultra wide myndavélinni geturðu fangað meira og náð betri fókus á aðalmyndefnið.

Sjálfu myndavél
Sjálfu myndavélin setur þig í fyrsta sæti með breytilegum bakgrunni og svokölluðu Fun Mode sem bætir við skemmtilegum filterum á myndirnar.

Rafhlaða
Stór 5000 mAh rafhlaða leyfir þér að gera meira, venjuleg notkun ætti að færa þér tveggja daga endingu og með 25W hleðslukubbi nærðu mikilli hleðslu á stuttum tíma.

Snjallir aukahlutir:
Samsung Galaxy Buds2 pro virka vel með Galaxy A55 5G, virk hljóðeinangrun gefur þér einstaklega góð hljóðgæði og útilokar meira að segja mýkri hljóð eins og vind.

Samsung A55 snjallveski er flott hulstur sem umlykur símann þinn og veitir fína vörn.

PanzerGlass A55 skjáfilma ver skjá símans fyrir höggi og rispum.

Athugið að hleðslukubbur fylgir ekki með símanum.








Samsung Galaxy A55
Veldu lit:
Veldu stærð:

Tækniupplýsingar

Ummál og þyngd
Hæð: 161,1 mm
Vídd: 77,4 mm
Þyngd: 213 g

Stýrikerfi
Android

Skjár
Stærð: 6.6"
Týpa: Super AMOLED 120Hz
Upplausn: 1080 x 2340
PPI: 390

Rafhlaða
Týpa: 5000mAh

Minni
Innra minni: 128GB
Minniskort:
Vinnsluminni:

Myndavél
Auka myndavél: 32MP
Upplausn: 12MP/50MP/5MP

Hugbúnaður
Íslenska
Tölvupóstur

Annað
Örgjörvi:

Gagnatengingar
4G
NFC
3G

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.