Vinnustaðurinn
Vodafone er þjónustufyrirtæki og við leggjum okkur fram við að veita góða og skjóta þjónustu. Við erum jákvæð, jafnt inn á við sem út á við, við tökum verkefnin hátíðlega en ekki okkur sjálf.
Við fögnum sigrum, stórum sem smáum, og leitumst við að ná sem bestum árangri á öllum sviðum. Við skiljum okkar eigin ábyrgð, höfum skýrar boðleiðir, umboð til athafna og grípum tækifærin þegar þau bjóðast. Við erum meðvituð um hlutverk okkar og veitum gagnkvæma endurgjöf á frammistöðu.
Speed
Við erum hugrökk, einbeitt og vinnum hratt.Vodafone er líflegur og hvetjandi vinnustaður þar sem við þjónustum viðskiptavini hratt og örugglega. Vodafone er leiðandi á markaði og setur markið sífellt hærra. Við forgangsröðum markvisst verkefnum til að ná árangri fyrir liðsheildina og viðskiptavini okkar.
Simplicity
Við einföldum lífið fyrir viðskiptavini okkar.Vodafone býður einfaldar lausnir fyrir viðskiptavini og starfsfólk. Það er einfalt að eiga viðskipti við Vodafone þar sem við flækjum ekki hlutina að óþörfu heldur gerum vörur og þjónustu eins aðgengilega og skýra og kostur er.
Trust
Við erum traust og áreiðanleg.Vodafone kemur ávallt fram af heilindum. Samskipti okkar eru traust og gagnsæ. Við höfum eftirlit með starfsemi okkar og öxlum ábyrgð á okkar eigin ferlum. Við styðjum hvert annað og myndum sterka liðsheild sem fagnar saman því sem vel er gert.
Okkur finnst gaman í vinnunni og saman myndum við sterka liðsheild. Við berum virðingu hvert fyrir öðru og fylkjum okkur á bak við gildi Vodafone: Speed, Simplicity og Trust.
Við erum:
- þjónustulunduð
- sveigjanleg
- skapandi og sýnum frumkvæði
- lífsglöð og kappsöm
- áreiðanleg
- fróðleiksfús og miðlum þekkingu
Við tökum verkefnin hátíðlega en ekki okkur sjálf.
Líf og starf
Vodafone leggur áherslu á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Við leitumst við að finna þann milliveg sem hámarkar afköst og starfsánægju. Við leggjum okkur fram um að leysa starfstengd og persónuleg mál í samvinnu við hvert annað.
Jafnrétti
Jafnréttismál eru okkur hugleikin og við gætum þess að starfsmönnum sé ekki mismunað á grundvelli kynferðis, kynþáttar eða þjóðernis, kynhneigðar, aldurs, trúar, skoðana eða annarra þátta. Umburðarlyndi er ríkjandi þáttur í samskiptum á vinnustaðnum.
Þjálfun og starfsþróun
Starfsþróunarmöguleikar innan Vodafone eru miklir. Við hvetjum starfsmenn til að auka hæfni sína og getu með því að takast á við verkefni sem efla þá og styrkja, bæði sem einstaklinga og liðsmenn. Fræðslustjóri hefur umsjón með fræðslu og þjálfun starfsmanna. Tekið er mið af þörfum félagsins sem og starfsmanna við skipulag þjálfunar.
Ráðningar
Starfsmenn Vodafone eru ráðnir á faglegum forsendum og ráðningar grundvallaðar á vel skilgreindum hæfniskröfum. Leit að fólki í ný störf eða störf sem losna hefst innan fyrirtækisins en leitað er út fyrir starfsmannahóp Vodafone þegar þurfa þykir. Við tökum vel á móti nýliðum og leggjum áherslu á að þeir upplifi sig strax sem hluta af sterkri liðsheild.
Viltu vera með?
Ef þú vilt slást í hópinn, þá hvetjum við þig til að senda okkur umsókn og hver veit nema leiðir okkar eigi eftir að liggja saman!

























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?