Hér má sækja það viðmiðunartilboð sem er grundvöllur þess samtengisamnings sem Og fjarskipti ehf. (Vodafone) bjóða þeim fjarskiptafyrirtækjum sem vilja semja um samtengingu við fjarskiptanet Vodafone. Markmiðið með slíkum samningi er að koma því til leiðar að sérhverjum símanotanda verði gert kleift að tengjast hvaða símnotanda sem er þótt hinn síðarnefndi sé tengdur öðru fjarskiptafyrirtæki og sé viðskiptavinur þess.