Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Upplýsingaöryggsstefna Vodafone

Það er ásetningur stjórnar Vodafone að upplýsingaeignir fyrirtækisins séu varðar og öryggi þeirra tryggt á viðeigandi hátt, í samræmi við verðmæti eignanna og ógnir sem að þeim steðja hverju sinni. Til þess að fylgja yfirlýsingu þessari eftir mun framkvæmdastjórn sjá til þess að komið verði á og starfrækt gæðakerfi sem m.a. nær til stjórnunar upplýsingaöryggis.


Öryggið felst í trúnaði, áreiðanleika og aðgengi.

  • Trúnaður. Upplýsingar eru aðeins aðgengilegar þeim sem hafa aðgangsheimild. Aðgangsheimildir eru háðar reglulegu eftirliti.

  • Áreiðanleiki. Gæði upplýsinga eru fullnægjandi, gögn eru rétt og ekkert vantar. Úreltum gögnum er eytt. Röng gögn eru leiðrétt. Reglulegt eftirlit er með áreiðanleika upplýsinga.

  • Aðgengi. Upplýsingar eru ávallt aðgengilegar þegar þeirra er þörf. Týndar eða skemmdar upplýsingar er hægt að endurheimta. Allar aðgerðir í upplýsingakerfum eru rekjanlegar.
  • Vodafone notar upplýsingatækni til varðveislu og miðlunar gagna. Möguleikar fyrirtækisins til að hagnýta sér upplýsingar munu auðvelda því að ná markmiðum sínum. Fyrirtækið mun vernda upplýsingaeignir sínar á þá vegu sem þykir viðeigandi og raunhæft.

  • Hlutverk upplýsingaöryggisstefnunnar er að lýsa skuldbindingu Vodafone um að vernda upplýsingaeignir sínar gegn ógnum, innan frá eða utan, vísvitandi eða óviljandi. Markmið stjórnunar upplýsingaöryggis er að tryggja öryggi upplýsingaeigna fyrirtækisins og áframhaldandi rekstur upplýsingakerfa. Af þeim sökum hefur fyrirtækið sett sér markmið er varðar leynd, réttleika gagna og tiltækileika gagna (sjá upptalningu fyrir ofan).

  • Umfang þessara upplýsingaöryggisstefnu nær til allrar starfsemi Vodafone og þjónustu sem fyrirtækið veitir viðskiptavinum sínum.

  • Stefna Vodafone er að innleiða gæðakerfi sem nær yfir stjórnun upplýsingaöryggis og byggir m.a. á skráningu atvika sem varða öryggisbresti og stjórnun viðbragða við þeim.

  • Nánari lýsing á upplýsingaöryggisstefnu Vodafone er í ítarlegri upplýsingaöryggisstefnu sem útlistuð er hér að neðan.

  • Ábyrgð á innleiðingu og viðhaldi þessara upplýsingaöryggisstefnu ber gæða- og öryggisstjóri og skal hann hafa það hlutverk að tryggja reglubundið viðhald á þeim hluta gæðakerfisins sem snýr að stjórnun upplýsingaöryggis. Hann skal einnig sjá til þess að farið sé að settum reglum og stöðlum sem styðja upplýsingaöryggisstefnuna og tryggja að starfsfólk hljóti viðeigandi fræðslu.

  • Starfsmenn bera ábyrgð á framkvæmd upplýsingaöryggisstefnunnar samkvæmt starfslýsingu og trúnaðaryfirlýsingu hvers og eins og nánari ákvæða í öryggishandbók. Starfsmenn sem hafa aðgang að upplýsingaeignum og þeir verktakar, sem koma að rekstri upplýsingakerfa, skulu hafa aðgang að og þekkja til þessarar upplýsingaöryggisstefnu og þeirra öryggisferla sem snerta vinnu þeirra.

    Upplýsingaöryggisstefna þessi tekur mið af lögum og reglugerðum um fjarskipti. Upplýsingaöryggisstefnan er í fullu samræmi við leiðbeinandi tilmæli Póst- og fjarskiptastofnunar, reglur Persónuverndar nr. 299/2001 um öryggi persónuupplýsinga og 47. grein fjarskiptalaga nr. 81/2003 um öryggi og þagnarskyldu fjarskiptafyrirtækja. Upplýsingaöryggisstefnan er endurskoðuð reglulega.

    Stjórn og framkvæmdastjórn Vodafone hafa forystu um og styðja við öryggi upplýsingaeigna. Formaður stjórnar staðfestir þessa upplýsingaöryggisstefnu með undirritun sinni.


    Þór Hauksson, formaður stjórnar Vodafone.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn