Ánægja með bætt samband á Sprengisandi
Landsvirkjun semur við Vodafone
50 evru öryggisþak á gagnanotkun farsíma
Þjónustuleiðir sem eru ekki með í reiknivél
Gættu þín á símkostnaði í útlöndum
Aukið öryggi með nýjum sæstreng
3G nettenglar seldir á 1 krónu
Sexföld símnotkun í Hlíðarfjalli
17.000 ókeypis SMS á einum degi
Aukin þjónusta við sjónvarpsáhorfendur í Hveragerði
Breyting á skilmálum vegna netþjónustu
GSM uppbyggingu á Vestfjörðum lokið - 30 sendar í loftið
Hringdu fríkeypis fram að jólum
Fréttablað Vodafone inn á 90.000 heimili
Vodafone hlýtur alþjóðleg verðlaun frá Microsoft
Nýir umboðsmenn á Akranesi og í Reykjanesbæ
Áströlsk Idol-stjarna í íslenskri auglýsingu
Segjum NEI við ofbeldi gegn konum
GSM uppbyggingu á þjóðvegum og ferðamannastöðum á Vestfjörðum lauk formlega þann 17. desember, þegar hringt var úr einum stærsta GSM síma í heimi af Gemlufallsheiði, milli Önundarfjarðar og Dýrafjarðar. Haraldur Júlíusson, formaður Björgunarfélags Ísafjarðar hringi í 112 þar sem Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, varð fyrir svörum. Haraldur og Þórhallur sögðu áfangann gríðarlega mikilvægan út frá öryggissjónarmiðum, enda væri GSM síminn orðinn eitt mikilvægasta öryggistæki almennings á ferðum sínum um landið.
Alls hafa um 30 nýir sendar frá Vodafone verið teknir í gagnið á Vestfjörðum á árinu. Stór svæði á sjó og landi, sem áður voru sambandslaus, eru nú komin í gott GSM samband. Hluti uppbyggingarinnar er á markaðslegum forsendum en einnig hafa fjölmargir sendar verið settir upp að tilstuðlan Fjarskiptasjóðs, sem fól Vodafone verkið í kjölfar útboðs.
Kristjáni L. Möller, samgönguráðherra, var einnig tilkynnt um lok þessa áfanga í dag. Hringt var í hann ofan af Gemlufallsheiðinni úr hinum ofvaxna GSM síma, sem upphaflega var smíðað til afnota í auglýsingar Vodafone. Í tilefni dagsins var símbúnaður settur í tækið svo hægt væri að nota það eins og hvern annan síma. Kristján Möllers sagðist fagna því, að GSM þjónusta á Vestfjörðum væri nú orðin sambærileg því sem gerðist víðast annars staðar á landinu. Hér væri um að ræða grundvallarþjónustu fyrir íbúa og ferðafólk, sem væri til þess fallin að bæta öryggi vegfarenda og auka lífsgæðin í fjórðungnum.
Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, sagðist afar stoltur af þeim frábæra árangri sem hefði náðst við stækkun GSM þjónustusvæðisins á þessu ári og þeirri staðreynd, að Vodafone hefði tekið forystuna í uppbyggingu GSM þjónustu á landsbyggðinni.
Óvæntur gestur birtist reyndar á Gemlufallsheiðinni í dag, í líki jólasveins í fullum skrúða. Jólasveinninn prófaði að sjálfsögðu símtækið, en sagðist annars vera á leiðinni til Þingeyrar að heimsækja leikskólabörn.
Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.