Vodafone.is - Fréttir af Vodafone

Gættu þín á símkostnaði í útlöndum

Ert þú að ferðast innan EES/ESB landanna?

Nú er gjaldfrjálst að fá skilaboð í talhólfið en eftir sem áður mun kosta að hlýða á skilaboð sem hafa borist í talhólfið þitt.

Margir símnotendur hafa uppgötvað með óþægilegum hætti, að símnotkun í útlöndum getur kostað skildinginn. Kostnaðurinn er mismikill milli landa en sum staðar er hann mun hærri en fólk gerir ráð fyrir, t.d. í Bandaríkjunum. Þess vegna er afar mikilvægt, að símnotendur kynni sér málið áður en lagt er af stað því hægt er að lækka símkostnaðinn með ýmsum hætti.

Við bendum einnig á, að mikill kostnaður getur hlotist af notkun 3G netlykla hafi fólk ekki fyrirfram keypt sér þjónustuleiðir sem tryggja bestu kjörin. Í því samhengi minnum við góðfúslega á, að 3G notkun í Evrópu er margfalt ódýrari fyrir viðskiptavini Vodafone en aðra vegna náins samstarfs Vodafone fyrirtækjanna í álfunni. Bestu kjörin eru þó eingöngu fyrir þá sem skrá sig í réttar þjónustuleiðir áður en stofnað er til kostnaðar!

Vodafone hvetur einnig fólk til að skoða ekki vefsíður í símanum erlendis, sækja og senda tölvupóst, myndir og skjöl úr símtækinu nema það viti nákvæmlega hvað þjónustan kostar. Slíkt getur nefnilega verið rándýrt! Ef þú hins vegar tryggir þér bestu mögulegu kjörin áður en lagt er af stað og kynnir þér verðskrár ólíkra landa gæti símreikningurinn við heimkomuna komið þér þægilega á óvart!

Hafðu þetta í huga:

  • Það er alltaf ódýrara að taka á móti símtölum erlendis heldur en að hringja heim.
  • Það er ódýrara í flestum tilvikum að hringja frekar en að eiga „SMS samtal“.
  • Það kostar ekkert að taka á móti SMS erlendis.
  • Þú getur alltaf sent ókeypis SMS af vodafone.is ef þú hefur aðgang að netinu erlendis.
  • Símtal á milli tveggja íslenskra símanúmera í útlöndum er tvöfalt útlandasímtal – fyrst heim og síðan aftur út. Þótt viðmælandinn sé við laugina og þú á ísbarnum rétt hjá!
  • Ef þú ert að ferðast utan EES/ESB landanna og símtöl til þín fara í talhólfið þitt þá ertu að borga tvöfalt útlandasímtal: fyrst frá Íslandi til útlanda og síðan aftur í talhólfið á Íslandi. Jafnvel þótt slökkt sé á símanum! Þú getur slökkt á símtalsflutningi í talhólfið með því að slá inn ##002# og ýta á hringja hnappinn.
  • Ekki svara ef þú vilt ekki borga! En þá verður þú líka að taka talhólfið alveg úr sambandi, því talhólfssvar jafngildir svari ef þú ert utan EES/ESB landanna.
  • Ef þú vilt vita hver hringdi þá getur þú skráð þig ókeypis í Hver hringdi þjónustuna og þá færðu eitt SMS með öllum þeim sem reyndu að ná í þig á meðan þú varst með slökkt á símanum eða utan svæðis. Þjónustan er algjörlega gjaldfrjáls, líka í útlöndum. Frelsisnúmer geta kveikt á þjónustunni með því að slá inn *133# og ýta á hringja, en númer í áskrift með því að slá inn **62*6899000# og ýta á hringja.

Ítarlegar upplýsingar veitir þjónustuverið okkar í síma 1414.

 

Mínar síður


Spurt og svarað

Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.

Tungumál