Vodafone.is - Fréttir af Vodafone

Viðvörun frá Vodafone

Nokkuð hefur borið á því undanfarið, að íslenskir farsímanotendur hafi fengið símtöl frá óþekktum erlendum númerum sem byrja á 00 882.  Notendur geta sjaldnast svarað símtölunum, því símtækið hringir eingöngu einu sinni eða tvisvar áður en símtalinu er slitið.  Velji notandinn hins vegar að hringja til baka í númerið getur hann lent í því, að fjármunir skuldfærist á símareikning viðkomandi líkt og gerist þegar hringt er í innlend fjáröflunarnúmer.

Vodafone hvetur þá viðskiptavini sem fá símtöl af þessu tagi að hringja ekki í viðkomandi númer, enda er hér um að ræða fjársvikastarfsemi í gegnum gervihnattasíma. 

Vodafone hefur lokað fyrir þau símanúmer sem vitað er að tengjast málinu og því geta viðskiptavinir ekki hringt til baka í þau númer. Tæknimenn Vodafone munu halda áfram að fylgjast með málinu og bregðast við eftir því sem þurfa þykir.

Mínar síður


Spurt og svarað

Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.

Tungumál