Vodafone.is - Fréttir af Vodafone

Aukið öryggi með nýjum sæstreng

Nýr sæstrengur, sem tengir saman Ísland og Evrópu, var tekin í notkun í dag þegar Vodafone opnaði fyrir umferð viðskiptavina sinna um strenginn. Um er að ræða sæstreng milli Íslands og Danmerkur, svokallaðan Danice-streng, sem nýlega var lagður milli landanna.

Strengurinn tryggir aukið öryggi í gagnaflutningi til og frá Íslandi auk þess sem netsamband við umheiminn verður bæði hraðara og enn tryggara en áður. Vodafone er fyrsti notandi nýja sæstrengsins.

Með tilkomu Danice-strengsins hefur Vodafone tryggt sér fjórar mismunandi gagnatengingar við umheiminn, sem tryggir meira samskiptaöryggi en önnur fjarskiptafyrirtæki á Íslandi. Hinir sæstrengirnir eru Farice-1, sem liggur milli Íslands, Færeyja og Skotlands, Cantat-3 sem tengir Evrópu og Kanada, og Greenland Connect sem tengir saman Ísland, Grænland og Kanada.

Lagning Danice-sæstrengsins hófst í ágúst 2008, en undirbúningur lagningarinnar hafði þá staðið í u.þ.b. eitt ár. Framleiðandi sæstrengsins og aðalverktaki við verkið var bandaríska fyrirtækið Tyco Telecommunications, sem er eitt stærsta fyrirtækið á þessu sviði. Á Íslandi er landtaka í Landeyjum, en í Danmörku á strönd Jótlands. Strengurinn er í eigu Eignarhaldsfélagsins Farice ehf, sem einnig á 80% í Farice-1 sæstrengnum. Hluthafar félagsins eru Landsvirkjun, íslenska ríkið, Orkuveita Reykjavíkur, Vodafone, Skipti hf. og HS Orka hf.

 

 

Mínar síður


Spurt og svarað

Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.

Tungumál