Ánægja með bætt samband á Sprengisandi
Landsvirkjun semur við Vodafone
50 evru öryggisþak á gagnanotkun farsíma
Þjónustuleiðir sem eru ekki með í reiknivél
Gættu þín á símkostnaði í útlöndum
Aukið öryggi með nýjum sæstreng
3G nettenglar seldir á 1 krónu
Sexföld símnotkun í Hlíðarfjalli
17.000 ókeypis SMS á einum degi
Aukin þjónusta við sjónvarpsáhorfendur í Hveragerði
Breyting á skilmálum vegna netþjónustu
GSM uppbyggingu á Vestfjörðum lokið - 30 sendar í loftið
Hringdu fríkeypis fram að jólum
Fréttablað Vodafone inn á 90.000 heimili
Vodafone hlýtur alþjóðleg verðlaun frá Microsoft
Nýir umboðsmenn á Akranesi og í Reykjanesbæ
Áströlsk Idol-stjarna í íslenskri auglýsingu
Segjum NEI við ofbeldi gegn konum
Gestum Smáralindar býðst nú einstakt tækifæri til að hringja ókeypis í vini og vandamenn, því Vodafone hefur sett upp litla og huggulega stofu á gólfi Smáralindar þar sem gestir geta hringt ókeypis fram að jólum. Símtækið í hringistofunni er harla óvenjulegt en flestir þekkja tækið úr auglýsingum Vodafone, þar sem Pétur Jóhann Sigfússon fer á kostum og hefur vakið mikla athygli. Símtækið var sérsmíðað fyrir auglýsingarnar auk þess sem tækið átti að vera til skrauts í verslunum Vodafone, en fyrir jólin kviknaði sú hugmynd að setja símbúnað í tækið þannig að hægt væri að hringja úr því. Það hefur nú verið gert og því getur almenningur fengið að hringja jólakveðjurnar sínar úr þessum fáránlega stóra en skemmtilega síma!
Hægt er að hringja í hvaða númer sem er, bæði innanlands og utan, og viðbúið er að margir nýti sér þessa skemmtilegu nýjung. Rétt er að taka fram, að símtækið hentar sennilega ekki til trúnaðarsamtala því hátalarinn í tækinu er þannig stilltur að rödd viðmælandans heyrist skýrt og greinilega þótt reyndar sé hægt að hækka og lækka í tækinu.
Eftir því sem næst verður komist er símtækið það stærsta sinnar tegundar í veröldinni. Fyrirmyndin að þessum ofurgemsa er Ericofónninn - eitthvert frægasta símtæki sögunnar – sem sænski símaframleiðandinn Ericsson hóf að framleiða árið 1954. Tækið var afrakstur áralangrar hönnunarvinnu, þar sem takmarkið var að hanna einfaldan, léttan, handhægan og ekki síst fallegan síma. Óhætt er að fullyrða að það hafi tekist, því fá símtæki hafa staðist tímans tönn betur en Ericofónninn. Hann var upphaflega framleiddur í 18 litum en síðar urðu litabrigðin um 30 talsins!
Ítarlegar upplýsingar um uppruna og sögu þessa merkilega símtækis má finna á www.ericofon.com.
Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.