Þann 1. febrúar 2009 taka gildi breytingar á skilmálum Vodafone fyrir internetþjónustu. Breytingarnar eru gerðar vegna verulega aukins kostnaðar Vodafone við að veita þjónustuna, en í stað þess að hækka verð til viðskiptavina verður erlenda gagnamagnið sem innifalið er í mánaðargjaldinu minnkað í 40 GB. Öll innlend notkun verður áfram innifalin í mánaðargjaldi.
Langflestir viðskiptavina Vodafone hala niður minna en 40 GB á mánuði erlendis frá og munu þ.a.l. ekki verða varir við breytinguna. Samhliða henni verður þó kynnt ný áskriftarleið, ætluð þeim sem vilja hala niður meira af gögnum og greiða sérstaklega fyrir umrætt gagnamagn. Þeir viðskiptavinir geta keypt 20 GB af viðbótarniðurhali frá útlöndum fyrir 9.900 kr. á mánuði.
Eftir breytingarnar eru skilmálarnir svohljóðandi:
- Eftirfarandi skilmálar gilda um Internet-þjónustu Vodafone (Og fjarskipti hf.) og er bæði áskrifendum að þjónustunni og öðrum notendum hennar skylt að hlíta þessum skilmálum. Að öðru leyti gilda skilmálar Vodafone um fjarskiptaþjónustu.
- Vodafone áskilur sér rétt til að færa þjónustu áskrifanda yfir á eigið kerfi af kerfi annara rekstraraðila.
- Vodafone lætur áskrifanda í té aðgang að Internet- og tölvupóstþjónustu sinni. Notanda er með öllu óheimilt að afhenda lykilorð sitt öðrum aðilum. Áskrifandi sem skráður er fyrir þjónustunni ber fulla ábyrgð á allri notkun henni tengdri. Eingöngu skráðir áskrifendur Vodafone geta nýtt sér aðgang að fríþjónustu. Áskrifendum Vodafone er með öllu óheimilt að nota aðgang sinn til að komast yfir upplýsingar um aðra notendur á nettengingu Vodafone, aðrar en þær sem veittar eru í opnum gagnagrunnum á Internetinu.
- Uppsetning á hugbúnaði er ávallt á ábyrgð áskrifanda og ber Vodafone því ekki ábyrgð á tjóni sem notkun eða uppsetning kann að valda.
- Vodafone ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að skapast vegna notkunar á tengingu við Internetið eða sambandsleysis við það. Áskrifandi ber sjálfur ábyrgð á afritatöku af þeim gögnum sem geymd eru á heimasvæði hans. Vodafone ber ekki ábyrgð á tjóni sem þriðji aðili kann að valda.
- Áskrifanda er óheimilt að trufla, skerða eða á nokkurn hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina, til dæmis með fjöldapóstsendingum. Áskrifanda er óheimilt að hýsa efni sem brýtur í bága við íslensk lög á heimasvæði sínu eða láta slíkt efni liggja á lausu á vefsvæðum. Áskrifendur skulu virða almennar umgengnisreglur sem settar eru á Internetinu.
- Til þess að tryggja öryggi í gagnaflutningum frá útlöndum áskilur Vodafone sér rétt til að synja áskrifanda um þjónustu um stundarsakir eða til frambúðar, fari niðurhal á gagnamagni erlendis frá yfir 40 GB á mánuði. Vodafone áskilur sér rétt til að takmarka erlent niðurhal notanda tímabundið fari niðurhal hans yfir viðmiðunarmörk Vodafone á nokkurra daga tímabil. Upplýsingar um viðmiðunarmörk á hverjum tíma er að finna á vodafone.is.
- Vodafone tryggir ekki að tengihraði notanda sé sá sami og áskrift hans segir til um. Hraði tengingar er ávallt háður gæðum línu þeirrar er liggur til notanda, fjarlægð notanda frá símstöð, álags á línu og öðrum þáttum.
- Áskrifanda ber að tilkynna uppsögn á Internetþjónustu Vodafone (utan fríþjónustu) með bréfi þar sem fram kemur fullt nafn viðskiptavinar, kennitala, notandanafn og lykilorð, eða með tölvupósti frá netfangi áskrifanda. Uppsögn miðast við upphaf nýs reikningstímabils, þann 1. hvers mánaðar.
- Ef áskrifandi segir upp samningi á samningstíma áskilur Vodafone sér rétt til að krefja áskrifanda um riftunargjald sem samsvarar þremur mánaðargjöldum.
- Brot á ofangreindum skilmálum getur valdið tafarlausri lokun á þjónustu.