Ánægja með bætt samband á Sprengisandi
Landsvirkjun semur við Vodafone
50 evru öryggisþak á gagnanotkun farsíma
Þjónustuleiðir sem eru ekki með í reiknivél
Gættu þín á símkostnaði í útlöndum
Aukið öryggi með nýjum sæstreng
3G nettenglar seldir á 1 krónu
Sexföld símnotkun í Hlíðarfjalli
17.000 ókeypis SMS á einum degi
Aukin þjónusta við sjónvarpsáhorfendur í Hveragerði
Breyting á skilmálum vegna netþjónustu
GSM uppbyggingu á Vestfjörðum lokið - 30 sendar í loftið
Hringdu fríkeypis fram að jólum
Fréttablað Vodafone inn á 90.000 heimili
Vodafone hlýtur alþjóðleg verðlaun frá Microsoft
Nýir umboðsmenn á Akranesi og í Reykjanesbæ
Áströlsk Idol-stjarna í íslenskri auglýsingu
Segjum NEI við ofbeldi gegn konum
Björgunarfélag Ísafjarðar og Björgunarsveitin Dýri frá Þingeyri hafa samið við Vodafone, um að fyrirtækið annist heildarfjarskiptaþjónustu fyrir félögin. Samningar þess efnis voru undirritaðir í Guðmundarbúð á Ísafirði á föstudagskvöld en gildistími samninganna er þrjú ár. Þá munu félagsmenn og fjölskyldur þeirra njóta góðs af samningnum í formi sérkjara á fjarskiptaþjónustu Vodafone.

Vodafone hefur á undanförnum misserum unnið markvisst að bættum fjarskiptum á Vestfjörðum. Uppbyggingin hefur meðal annars tryggt öruggt GSM samband á fjölmörgum svæðum sem ekki höfðu notið slíkrar þjónustu áður, bæði á sjó og landi. Meðal svæða sem komist hafa í GSM samband á þessu ári fyrir tilstilli Vodafone eru Jökulfirðir, Drangjökull, Strandir, Gemlufallsheiði og stór svæði við Ísafjarðardjúp. Þá er GSM þjónusta nú í boði á hafsvæðinu kringum Vestfirði, í allt að 120 kílómetra fjarlægð frá landi.
Fjölgun viðskiptavina úr hópi þeirra sem sinna björgunar- og neyðarhjálparstarfi á Íslandi er mikið ánægjuefni fyrir Vodafone, enda gera slíkir aðilar miklar kröfur um öryggi þjónustunnar og stærð þjónustusvæða. Fyrr á þessu ári samdi Slysavarnafélagið Landsbjörg – landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi – við Vodafone auk þess sem Neyðarlínan færði sín viðskipti til Vodafone.
Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.