Gættu þín á símkostnaði í útlöndum
Aukið öryggi með nýjum sæstreng
3G nettenglar seldir á 1 krónu
Sexföld símnotkun í Hlíðarfjalli
17.000 ókeypis SMS á einum degi
Aukin þjónusta við sjónvarpsáhorfendur í Hveragerði
Breyting á skilmálum vegna netþjónustu
GSM uppbyggingu á Vestfjörðum lokið - 30 sendar í loftið
Hringdu fríkeypis fram að jólum
Fréttablað Vodafone inn á 90.000 heimili
Vodafone hlýtur alþjóðleg verðlaun frá Microsoft
Nýir umboðsmenn á Akranesi og í Reykjanesbæ
Áströlsk Idol-stjarna í íslenskri auglýsingu
Segjum NEI við ofbeldi gegn konum
Margir símnotendur hafa uppgötvað með óþægilegum hætti, að símnotkun í útlöndum getur kostað skildinginn. Kostnaðurinn er mismikill milli landa en sum staðar er hann mun hærri en fólk gerir ráð fyrir. Þess vegna er afar mikilvægt, að símnotendur kynni sér málið áður en lagt er af stað því hægt er að lækka símkostnaðinn með ýmsum hætti.
Við bendum einnig á, að mikill kostnaður getur hlotist af notkun 3G netlykla hafi fólk ekki fyrirfram keypt sér þjónustuleiðir sem tryggja bestu kjörin. Í því samhengi minnum við góðfúslega á, að 3G notkun í Evrópu er margfalt ódýrari fyrir viðskiptavini Vodafone en aðra vegna náins samstarfs Vodafone fyrirtækjanna í álfunni. Bestu kjörin eru þó eingöngu fyrir þá sem skrá sig í réttar þjónustuleiðir áður en stofnað er til kostnaðar!
Nýr sæstrengur, sem tengir saman Ísland og Evrópu, var tekin í notkun í dag þegar Vodafone opnaði fyrir umferð viðskiptavina sinna um strenginn. Um er að ræða sæstreng milli Íslands og Danmerkur, svokallaðan Danice-streng, sem nýlega var lagður milli landanna.
Strengurinn tryggir aukið öryggi í gagnaflutningi til og frá Íslandi auk þess sem netsamband við umheiminn verður bæði hraðara og enn tryggara en áður. Vodafone er fyrsti notandi nýja sæstrengsins.
Með tilkomu Danice-strengsins hefur Vodafone tryggt sér fjórar mismunandi gagnatengingar við umheiminn, sem tryggir meira samskiptaöryggi en önnur fjarskiptafyrirtæki á Íslandi. Hinir sæstrengirnir eru Farice-1, sem liggur milli Íslands, Færeyja og Skotlands, Cantat-3 sem tengir Evrópu og Kanada, og Greenland Connect sem tengir saman Ísland, Grænland og Kanada.
Lagning Danice-sæstrengsins hófst í ágúst 2008, en undirbúningur lagningarinnar hafði þá staðið í u.þ.b. eitt ár. Framleiðandi sæstrengsins og aðalverktaki við verkið var bandaríska fyrirtækið Tyco Telecommunications, sem er eitt stærsta fyrirtækið á þessu sviði. Á Íslandi er landtaka í Landeyjum, en í Danmörku á strönd Jótlands. Strengurinn er í eigu Eignarhaldsfélagsins Farice ehf, sem einnig á 80% í Farice-1 sæstrengnum. Hluthafar félagsins eru Landsvirkjun, íslenska ríkið, Orkuveita Reykjavíkur, Vodafone, Skipti hf. og HS Orka hf.
Frá og með 1. júlí veitir Vodafone GSM þjónustu eingöngu á sínu eigin dreifikerfi um allt land en áður leigði Vodafone aðgang að sendum Símans hf. á völdum landsvæðum.* Þetta eru sannarlega tímamót í fjarskiptasögunni, því í fyrsta sinn hefur annað fjarskiptafyrirtæki en Síminn byggt upp GSM kerfi sem veitir þjónustu um allt land. Auk þess að tryggja framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini Vodafone skapar það tækifæri fyrir önnur símafélög til að semja við fleiri en einn aðila um þjónustu á öllu landinu.
Á undanförnum tveimur árum hafa tæknimenn Vodafone sett upp tæplega 200 nýja GSM senda um allt land. Með þeim hefur tekist að tryggja GSM þjónustu á svæðum sem áður voru sambandslaus, t.d. á hálendinu og langt á haf út. Þannig hefur Vodafone tekið frumkvæði í slíkri uppbyggingu, sem hefur skilað sér í mun betri þjónustu við almenning í landinu.
-
* Vodafone mun áfram nota þá senda sem Síminn setti upp fyrir Fjarskiptasjóð á kostnað ríkisins, til að tryggja GSM þjónustu á svæðum sem annars hefðu ekki verið í sambandi. Að sama skapi mun Síminn áfram nota þá senda sem Vodafone setti upp fyrir Fjarskiptasjóð.
Vodafone og Icelandair Group hafa samið um, að Vodafone annist alla fjarskiptaþjónustu fyrir Icelandair næstu þrjú árin. Þjónustusamningurinn var gerður í framhaldi af útboði sem Icelandair efndi til og stóru símafélögin tóku þátt í. Gengið var til samninga við Vodafone á grundvelli tilboðsins sem sent var inn og því ferli er nú lokið með undirritun þjónustusamnings. Gildistími samningsins er þrjú ár.
Icelandair hefur verið einn af stærstu viðskiptavinum Vodafone undanfarin ár og samstarf fyrirtækjanna hefur gengið mjög vel. Á sínum tíma var tilfærslan á allri fjarskiptaþjónustu Icelandair til Vodafone ein sú umfangsmesta sem fyrirtækið hafði unnið að, en hún gekk í alla staði vel fyrir sig.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Vodafone, segist fagna því að samningurinn við Icelandair hafi verið endurnýjaðir. „Það eru bestu meðmælin sem við getum fengið, að stórir og kröfuharðir viðskiptavinir eins og Icelandair velji Vodafone. Góð fjarskiptaþjónusta og lágur kostnaður skiptir Icelandair gríðarlega miklu máli og það er er gæðastimpill fyrir okkar starfsfólk að þjónustusamningurinn við Icelandair hafi verið endurnýjaður.“
Keppendur í Idol-stjörnuleit verða við verslun Vodafone í Smáralind laugardaginn 18. apríl milli kl 14 og 15. Stjörnurnar munu árita myndir handa gestum og gangandi og frábær Idol-stemning verður í versluninni, þar sem viðskiptavinir geta m.a. fengið að snúa lukkuhjóli þar sem frábærir vinningar eru í boði! Hægt er að vinna Idol-símann frá Nokia, pizzuveislur, miða á keppnina og margt fleira!
Hringitónar með tónlistinni úr Söngkeppni framhaldsskólanna eru nú í boði hér á vefsíðu Vodafone! Keppnin fer fram laugardaginn 18. apríl en hringitónarnir voru búnir til úr upptökum á æfingu sem fram fór fyrir keppnina! Vodafone er stuðningsaðili keppninnar og mun þess vegna bjóða hringitónana ókeypis til sinna viðskiptavina!
- 5 GB niðurhal á mánuði í heilt ár fylgir með
- Mikil verðlækkun á 3G notkun
Vodafone bauð þann 1. apríl 3G nettengla til sölu á aðeins 1 krónu í verslun sinni í Skútuvogi í Reykjavík. Innifalið í verðinu var 5 GB niðurhal á mánuði innanlands í heilt ár! Fullt staðgreiðsluverð á nettenglinum er 18.900 kr. og því er óhætt að segja, að fólk hafi gert sannkölluð reyfarakaup þann 1. apríl. Það skal tekið fram, að ekki var um aprílgabb að ræða og þeir sem höfðu hraðar hendur og mættu á staðinn gerðu góð kaup!
Með þessu framtaki vildi Vodafone vekja athygli á nýrri verðskrá fyrirtækisins og þjónustuleiðum fyrir 3G notkun, sem tók gildi 1. apríl. Með tilkomu nýju verðskrárinnar lækkaði verð á 3G þjónustu verulega og þeir viðskiptavinir Vodafone þegar voru skráðir á 3G þjónustuleiðir fyrirtækisins voru færðir yfir á hinar nýju og hagkvæmu leiðir. Samkvæmt þeim geta 3G notendur valið milli þess, að greiða 1.990 kr. fyrir þjónustuleið með 5 GB innlendu niðurhali inniföldu og þess, að greiða 3.990 kr. fyrir 10 GB innifalið niðurhal.
Með 3G nettengli frá Vodafone kemst þú í netsamband nánast hvar sem er. Þú stingur nettenglinum í samband við fartölvuna og kemst samstundis í netsamband ef 3G eða hefðbundið GSM samband er fyrir hendi.
Rétt er að árétta, að 3G niðurhal erlendis er ekki innifalið í 3G þjónustuleiðum Vodafone. Greiða þarf fyrir slíka notkun samkvæmt verðskrá fyrir hvert land. Vodafone vill góðfúslega benda á, að 3G notkun erlendis getur verið afar dýr og varar sína viðskiptavini við að stofna ekki til kostnaðar erlendis sem þeir eru ekki reiðubúnir að greiða fyrir.
Farsímanotkun margfaldaðist í Hlíðarfjalli á laugardaginn var, en þá stöðvaðist stólalyftan í fjallinu og hundrað manns sátu þar fastir um tíma. Af gögnum úr nýrri GSM sendistöð frá Vodafone í Hlíðarfjalli að dæma nýttu gestir í í fjallinu tímann til að tala í farsímann (sjá mynd) og ljóst er að þeir sem sátu fastir í lyftunni nutu góðs af bættu GSM sambandi í Hlíðarfjalli.
Uppsetning nýs GSM sendis í fjallinu fyrir skömmu eykur mjög öryggi skíðafólks, enda eiga flestir farsíma sem þeir taka gjarnan með í fjallið. Við mælum að sjálfsögðu með því að fólk tali ekki símann á ferð, en sendi skilaboð og myndir af fjölskyldunni til vina og vandamanna þess á milli.
Þess má geta, að Vodafone er eina fjarskiptafyrirtækið sem hefur sett upp GSM sendi í Hlíðarfjalli.
Fátt er mikilvægara fyrir fólk sem er á milli starfa en að viðhalda félagsleg um tengslum. Örugg fjarskiptaþjónusta er nauðsynleg í slíkum tilvikum, ekki síst svo fólk geti nýtt sér margvíslega þjónustu sem veitt er á netinu eða í síma.
Vodafone vill koma til móts við þá sem nú glíma við atvinnuleysi, bæði nú verandi og nýja viðskiptavini, með því að fella niður í tvo mánuði mánaðargjald af ofurheimasímaþjónustu þeirra sem skráðir eru í Vodafone Gull. Þeir geta því hringt án endurgjalds úr heimasímanum í alla aðra heimasíma á Íslandi, án endurgjalds í GSM síma innanlands fyrir andvirði 6.000 kr. á mánuði og án endurgjalds til útlanda fyrir andvirði 6.000 kr. á mánuði.
Ef þú getur nýtt þér boðið viljum við bjóða þér að koma í næstu verslun Vodafone eða til umboðsmanns og ganga frá málinu. Til staðfestingar á stöðu þinni á vinnumarkaði óskum við eftir að launaseðli frá Vinnumálastofnun verði framvísað. Við heitum fullum trúnaði og góðri þjónustu.
Tilboð þetta gildir til 1. maí 2009.
-
Geta núverandi viðskiptavinir nýtt sér tilboðið?
Já, bæði nýir og núverandi viðskiptavinir í Vodafone Gull. Viðskiptavinir þurfa að koma í næstu verslun Vodafone eða til umboðsmanna og ganga frá málinu. Til staðfestingar á stöðu viðskiptavinar á vinnumarkaði óskum við eftir því, að launaseðli vegna greiðslu atvinnuleysisbóta verði framvísað. Við heitum fullum trúnaði og góðri þjónustu.
Hvers vegna þarf að framvísa launaseðli frá Vinnumálastofnun?
Eins sérkennilega og það hljómar, þá hefur atvinnulaust fólk ekkert annað í höndunum til staðfestingar á stöðu sinni á vinnumarkaðnum en launaseðil frá Vinnumálastofnun. Stofnunin gefur ekki út vottorð til staðfestingar á atvinnuleysi og við getum ekki – frekar en aðrir – hringt í stofnunina og óskað eftir upplýsingum um fólk. Þetta er þess vegna eina leiðin til að fá staðfestingu á því að fólk sé á milli starfa. Það er samt rétt að taka fram, að þegar skráningunni er lokið er þeim gögnum eytt sem notuð voru við skráninguna.
Hvað ef annað hjóna er atvinnulaust en ekki hitt?
Þessi leið stendur atvinnulausum viðskiptavinum í Vodafone Gull til boða og þá gildir einu hvort annað hjóna eða bæði eru á milli starfa.
Hver eru skilyrði fyrir því að vera í Vodafone Gull?
Skráning í Vodafone Gull er gjaldfrjáls. Viðskiptavinir sem eru með heimasíma, GSM síma og ADSL eða ljósleiðaratengingu hjá Vodafone njóta Vodafone Gull kjara. GSM síminn getur verið áskrift eða Frelsi, en sé um Frelsi að ræða þarf að vera 1.000 kr. mánaðarleg sjálfvirk áfylling af greiðslukorti.
Vodafone hefur hafið uppsetningu á GSM sendum á 40 stöðum á landinu og mun frá og með haustinu eingöngu notast við eigið GSM dreifikerfi.* Verkefnið markar mikil tímamót og tryggir enn betur en áður samkeppnishæfni Vodafone, sem hefur leitt samkeppni á fjarskiptamarkaðnum í 11 ár.
Á síðasta ári settu tæknimenn Vodafone upp 126 GSM senda, sem m.a. tryggðu þjónustu á svæðum sem áður voru sambandslaus, s.s. á hálendinu og langt á haf út. Með uppsetningunni nú hefur Vodafone tekið lokaskrefið í uppbyggingu á dreifikerfi sem stendur öðrum GSM kerfum á Íslandi tæknilega framar, því auk gríðarlegrar stækkunar á dreifikerfi Vodafone hefur eldri sendum verið skipt út fyrir nýja. Þannig hefur viðskiptavinum verið tryggð áreiðanlegasta og afkastamesta GSM þjónustan á Íslandi.
* Hingað til hefur Vodafone leigt aðgang að GSM kerfi Símans á völdum svæðum á landinu en hættir því í haust. Vodafone og Síminn munu eftir sem áður nýta GSM dreifikerfi hvort annars á svæðum þar Fjarskiptasjóður, f.h. hins opinbera, hefur greitt fyrir uppsetninguna, m.a. í öryggisskyni.
Nokkuð hefur borið á því undanfarið, að íslenskir farsímanotendur hafi fengið símtöl frá óþekktum erlendum númerum sem byrja á 00 882. Notendur geta sjaldnast svarað símtölunum, því símtækið hringir eingöngu einu sinni eða tvisvar áður en símtalinu er slitið. Velji notandinn hins vegar að hringja til baka í númerið getur hann lent í því, að fjármunir skuldfærist á símareikning viðkomandi líkt og gerist þegar hringt er í innlend fjáröflunarnúmer.
Vodafone hvetur þá viðskiptavini sem fá símtöl af þessu tagi að hringja ekki í viðkomandi númer, enda er hér um að ræða fjársvikastarfsemi í gegnum gervihnattasíma.
Vodafone hefur lokað fyrir þau símanúmer sem vitað er að tengjast málinu og því geta viðskiptavinir ekki hringt til baka í þau númer. Tæknimenn Vodafone munu halda áfram að fylgjast með málinu og bregðast við eftir því sem þurfa þykir.
Vinsældir ókeypis SMS sendinga af heimasíðu Vodafone hafa aukist mikið á undanförnum mánuðum og nú er svo komið, að daglega eru send um 11.500 ókeypis SMS skeyti af vodafone.is. Aukningin nemur 53% frá ársbyrjun 2008, en þá voru um 7.500 ókeypis SMS skeyti send frá heimasíðu Vodafone á hverjum degi.
Notkun þessa þægilega og hagkvæma samskiptamáta er þó mismikil milli daga, en flest voru skeytin á síðasta ári þann 4. desember. Þann dag voru meira en 17 þúsund ókeypis SMS send af vefnum.
Þriðjudaginn 20. janúar verður útsendingarbúnaður Vodafone Digital Ísland færður frá símstöðinni á Selfossi og settur upp í mastur Vodafone í landi Jórvíkur sunnan Selfoss. Með breytingunni stækkar það svæði sem UHF útsendingar Vodafone Digital Ísland ná til, en hingað til hafa slíkar útsendingar ekki náðst í Hveragerði og nágrenni. Vegna breytinganna gætu sjónvarpsáhorfendur á Selfossi þurft að snúa loftnetum sínum og beina þeim að Jórvík, þar sem búnaðurinn verður settur upp.
Þessi tilfærsla hefur ekki áhrif á þá sem nota örbylgjuloftnet til að taka á móti útsendingum Vodafone Digital Ísland.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Árvirkjanum á Selfossi, þjónustuveri Vodafone í síma 1414 og á www.sart.is.
Þann 1. febrúar 2009 taka gildi breytingar á skilmálum Vodafone fyrir internetþjónustu. Breytingarnar eru gerðar vegna verulega aukins kostnaðar Vodafone við að veita þjónustuna, en í stað þess að hækka verð til viðskiptavina verður erlenda gagnamagnið sem innifalið er í mánaðargjaldinu minnkað í 40 GB. Öll innlend notkun verður áfram innifalin í mánaðargjaldi.
Langflestir viðskiptavina Vodafone hala niður minna en 40 GB á mánuði erlendis frá og munu þ.a.l. ekki verða varir við breytinguna. Samhliða henni verður þó kynnt ný áskriftarleið, ætluð þeim sem vilja hala niður meira af gögnum og greiða sérstaklega fyrir umrætt gagnamagn. Þeir viðskiptavinir geta keypt 20 GB af viðbótarniðurhali frá útlöndum fyrir 9.900 kr. á mánuði.
Eftir breytingarnar eru skilmálarnir svohljóðandi:

100 þúsund SMS skeyti voru send úr farsímakerfi Vodafone á fyrstu klukkustund ársins 2009 og alls urðu skeytin um 200 þúsund áður en nýársnótt var á enda! Þetta er nokkuð meiri notkun en undanfarin ár, en mikið álag er jafnan á farsímakerfum í landinu um áramót, bæði vegna símtala og SMS-skeyta sendinga.
Til samanburðar má nefna, að meðalfjöldi SMS skeyta á síðasta ári var um 9.000 á hverri klukkustund ársins. Samanlagt voru rúmlega 80 milljón SMS skeyti send um farsímakerfi Vodafone á árinu 2008.
Á nýliðnu ári var símnotkunin þó mest í kjölfar jarðskjálftans á Suðurlandi, sem varð kl. 15:45 þann 29. maí, því símtölin í farsímakerfi Vodafone á fyrstu klukkustundinni eftir skjálftann voru um 260 þúsund talsins. Álagið á GSM kerfið minnkaði eftir því sem leið á daginn og var notkunin að mestu komin í eðlilegt horf um kl. 19 þann dag.
Mikil uppbygging hefur verið á farsímakerfi Vodafone á undanförnum árum og á síðasta ári var sett nýtt Íslandsmet í fjölda uppsettra GSM senda. Alls voru 126 nýir sendar gangsettir á árinu og stór landssvæði komust í fyrsta sinn í GSM samband, t.d. stærstur hluti hálendisins, þjóðvegir um allt land og hafsvæði kringum landið.

Á milli jóla og nýárs var dregið í SMS jólaleik Vodafone, en til hans var boðað í fréttablaði sem sent var inn á 90.000 heimili fyrir jólin. Þátttaka í leiknum fór fram úr okkar björtustu vonum og viljum við þakka fyrir góðar móttökur fréttablaðsins. Með SMS-i var hægt að svara spurningunni um hver það er sem leikur í auglýsingum okkar, en rétt svar er auðvitað Pétur Jóhann Sigfússon.
Vinningshafinn, Árni Viðar Jóhannesson, hreppti að launum Nokia 5310 XpressMusic GSM síma og vitjaði hann vinningsins í búð okkar í verslunarkjarnanum Glerártorgi á Akureyri. Við óskum Árna Viðari til hamingju með símann, sem kemur væntanlega að góðum notum á nýju ári og um ókomin ár.
GSM uppbyggingu á þjóðvegum og ferðamannastöðum á Vestfjörðum lauk formlega þann 17. desember, þegar hringt var úr einum stærsta GSM síma í heimi af Gemlufallsheiði, milli Önundarfjarðar og Dýrafjarðar. Haraldur Júlíusson, formaður Björgunarfélags Ísafjarðar hringi í 112 þar sem Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, varð fyrir svörum. Haraldur og Þórhallur sögðu áfangann gríðarlega mikilvægan út frá öryggissjónarmiðum, enda væri GSM síminn orðinn eitt mikilvægasta öryggistæki almennings á ferðum sínum um landið.
Gestum Smáralindar býðst nú einstakt tækifæri til að hringja ókeypis í vini og vandamenn, því Vodafone hefur sett upp litla og huggulega stofu á gólfi Smáralindar þar sem gestir geta hringt ókeypis fram að jólum. Símtækið í hringistofunni er harla óvenjulegt en flestir þekkja tækið úr auglýsingum Vodafone, þar sem Pétur Jóhann Sigfússon fer á kostum og hefur vakið mikla athygli. Símtækið var sérsmíðað fyrir auglýsingarnar auk þess sem tækið átti að vera til skrauts í verslunum Vodafone, en fyrir jólin kviknaði sú hugmynd að setja símbúnað í tækið þannig að hægt væri að hringja úr því. Það hefur nú verið gert og því getur almenningur fengið að hringja jólakveðjurnar sínar úr þessum fáránlega stóra en skemmtilega síma!
Fréttablað Vodafone fylgdi öllum eintökum Fréttablaðsins í dag, mánudaginn 15. desember. Þar er að finna margvíslegan fróðleik og fréttir af starfsemi og þjónustu okkar, ásamt því sem jólatilboðin eru kynnt.
Hér er hægt að skoða blaðið á PDF sniði (4,6 MB).
Hugbúnaðarrisinn Microsoft hefur verðlaunað Vodafone á Íslandi fyrir nýsköpun og hugvitssama nýtingu Microsoft-lausna sem skilað hafa góðum árangri við rekstur fyrirtækisins. Verðlaunin hlýtur Vodafone fyrir þróun á CRM kerfinu, en kerfið var hannað til að sækja mikilvægar upplýsingar um viðskiptavini úr 18 mismunandi tölvukerfum og birta þjónustufulltrúum á einum stað.
Viðurkenningin er hluti af því sem Microsoft kallar Customer Excellence Award, en það eru árleg verðlaun sem veitt eru í 12 flokkum. Við erum að sjálfsögðu afar stolt yfir árangrinum og ekki síst því, að vera verðlaunuð í flokki sem ber yfirskriftina Nýsköpun.
Ítarlegri upplýsingar er að finna á heimasíðu Microsoft Convergence ráðstefnunnar, þar sem verðlaunin voru formlega afhent (sjá hér).
Ein breyting verður gerð á skilmálum vegna netþjónustu frá Vodafone þann 1. desember nk. Breytingin felst í því, að eftirfarandi klausu verður bætt við fyrri skilmála:
“Vodafone tryggir ekki að tengihraði notanda sé sá sami og áskrift hans segir til um. Hraði tengingar er ávallt háður gæðum línu þeirrar er liggur til notanda, fjarlægð notanda frá símstöð, álags á línu auk annarra þátta.”
Tölvuþjónusta Vals í Reykjanesbæ og verslunin Model á Akranesi eru nýir umboðsaðilar Vodafone. Fyrirtækin munu annast alla almenna þjónustu fyrir Vodafone á Akranesi og í Reykjanesbæ og m.a. afhenda netbúnað og símkort, myndlykla fyrir Digital Ísland, veita ráðgjöf og bjóða upp á gott úrval símtækja.
Tölvuþjónusta Vals hefur í 10 ár sinnt margvíslegri tölvuþjónustu í Reykjanesbæ. Auk viðgerða á tölvubúnaði og hugbúnaðarþjónustu selur fyrirtækið vörur frá Dell og Xerox fyrir EJS, Canon og Lexmark fyrir Nýherja og Fujitsu Siemens fyrir Digital Task.
Verslunin Model býður mikið úrval raftækja, m.a. frá Pioneer, Samsung, AEG og SHARP, auk þess ýmis gjafavara og skartgripir frá íslenskum hönnuðum eru á boðstólum. Verslunin hóf starfsemi í október 1992 og hefur því fest sig í sessi á Akranesi. Framundan eru miklar breytingar hjá Model, því ráðgert er að flytja verslunina í nýtt 750 m2 húsnæði á Akranesi á næstu vikum.
Vodafone Gull auglýsingarnar sem birst hafa í sjónvarpi, útvarpi og í blöðum hafa vakið mikla athygli og viðskiptavinir hafa tekið þessari nýju þjónustuleið fagnandi. Fjölmargir hafa einnig haft samband og spurst fyrir um tónlistina sem notuð er í auglýsingunum og það er Vodafone sönn ánægja að upplýsa áhugasama um uppruna hennar. Lagið sem um ræðir heitir Neopolitan Dreams og er samið og sungið af Lisu Mitchell, 18 ára ástralskri söngkonu. Lisa er rísandi stjarna í tónlistarbransanum og nýtt myndband við lagið má sjá með því að smella hér.
Þessa dagana stendur UNIFEM fyrir undirskriftarátaki á netinu, þar sem fólk er hvatt til undirrita mótmæli gegn ofbeldi gagnvart konum. Vodafone styður þetta átak UNIFEM og hvetur alla sem vettlingi geta valdið til að taka þátt og senda þannig sterk skilaboð um að kynbundið ofbeldi er með öllu óþolandi.
Undirskriftaátakið er hluti af alþjóðlegu verkefni UNIFEM, sem hvetur ríkisstjórnir heims til að grípa til aðgerða og stöðva ofbeldi gegn konum.
Á vef UNIFEM á Íslandi eru ýmsar upplýsingar varðandi málið, sem við hvetjum þig til að skoða og skipta þér af.
Smelltu hér til að skrifa undir.
Smelltu hér til að kynna þér málið betur.
Sala á nýju og endurbættu BlackBerry-tæki, sem sett var á markað í örfáum löndum fyrir fáeinum dögum, hefst hér á landi í dag. Íslenskir BlackBerry unnendur eru því meðal þeirra fyrstu í heiminum til að komast í tæri við nýja tækið sem hlotið hefur nafnið BlackBerry Bold. Hér á landi fæst ot;>BlackBerry Bold aðeins hjá Vodafone.
Björgunarfélag Ísafjarðar og Björgunarsveitin Dýri frá Þingeyri hafa samið við Vodafone, um að fyrirtækið annist heildarfjarskiptaþjónustu fyrir félögin. Samningar þess efnis voru undirritaðir í Guðmundarbúð á Ísafirði á föstudagskvöld en gildistími samninganna er þrjú ár. Þá munu félagsmenn og fjölskyldur þeirra njóta góðs af samningnum í formi sérkjara á fjarskiptaþjónustu Vodafone.
Ellefu nýjar GSM sendistöðvar voru gangsettar um helgina og alls hafa þá 62 nýir sendar frá Vodafone verið teknir í notkun á árinu. Á norðausturlandi voru GSM sendar gangsettir á Gunnólfsvíkurfjalli, á Þórshöfn á Langanesi, Viðarfjalli í Þistilfirði, á Raufarhöfn, Snartarstaðanúpi á Melrakkasléttu og við Tjörnesvita.
Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.