Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Fjarskiptafyrirtæki í eigu almennings

Vodafone er í eigu Eignarhaldsfélagsins Fjarskipta hf. Eignarhald þess er dreift, því félagið er m.a. í eigu fjölmargra lífeyrissjóða, sem ýmist eiga beinan eða óbeinan hlut í Eignarhaldsfélaginu Fjarskiptum. Stærsti eigandinn er Eignarhaldsfélagið Vestia, en það er í eigu Framtakssjóðs Íslands. Að auki á Framtakssjóður 18,4% hlut beint í félaginu. Framtakssjóður er svo í eigu 16 lífeyrissjóða þannig að sannarlega má segja að Vodafone sé fjarskiptafyrirtæki í eigu almennings.

Eignarhlutur skiptist svona, 1. september 2011:

  • 61,0% Eignarhaldsfélagið Vestia ehf.
  • 18,4% Framtakssjóður Íslands slhf.
  • 3,1% Lífeyrissjóður Bankastræti 7
  • 2,6% Íslandssjóðir hf, sjóður 1
  • 2,2% Miðengi ehf.
  • 2,2% Rekstrafélag verðabréfasjóða ÍV hf.
  • 1,5% Lífeyrissjóður verkfræðinga
  • 1,4% Gildi - lífeyrissjóður
  • 1,1% Stafir lífeyrissjóður
  • 1,0% Kaupþing Hávaxtasjóður
  • 5,5% Aðrir hluthafar samtals

Stjórn Vodafone er þannig skipuð:

Þór Hauksson er stjórnarformaður Vodafone. Hann starfar hjá Framtakssjóði Íslands en var áður starfsmaður í fjármálaráðuneytinu, hjá Kaupþingi, Straumi fjárfestingarbanka og Skiptum hf. Þór er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og MA gráðu í stjórnmála- og hagfræði frá University of Hull. Hann situr í stjórn Icelandic Group, Húsasmiðjunnar, Teymis og Skýrr.


Erna Eiríksdóttir situr í stjórnum Íslandssjóða hf. og Advania hf. og hefur starfað m.a. hjá Landsvirkjun Power og Eimskipum. Erna hefur próf í verðbréfaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík, MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík og Cand.oecon. frá endurskoðunarsviði viðskiptadeildar Háskóla Íslands.


Helga Viðarsdóttir er markaðsstjóri Norræna hússins, en starfaði áður sem framkvæmdastjóri Trico og framkvæmdastjóri markaðssviðs 66°Norður. Hún er menntaður rekstrarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og með meistarapróf í viðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Árósum með áherslu á viðskipti milli fyrirtækja. Helga situr í stjórn fjölmiðilsins Krítik og Trico hf.


Reimar Pétursson er hæstaréttarlögmaður og rekur lögmannsstofu í félagi með öðrum. Auk lögmannsstarfa hefur hann starfað m.a. hjá Atorku og Straumi fjárfestingarbanka. Reimar er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf frá Columbia University í New York.


Vilmundur Jósefsson er framkvæmdastjóri hjá Svartá ehf. Hann situr einnig í stjórnum MP Banka, Stáss ehf. og Gæðafæðis ehf. (nú Svartá ehf.). Vilmundur er formaður Samtaka atvinnulífsins og hefur setið í stjórn samtakanna. Hann var formaður Samtaka iðnaðarins á árunum 2000 til 2006 og sat í stjórn samtakanna áður. Vilmundur er viðskiptafræðingur frá HÍ.


Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn