Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Skilmálar um viðgerðir farsíma

Skilmálar Vodafone vegna leigu/láns á síma:

  • Leigutaki hefur fengið að leigu/láni ofangreint símtæki sem er í eigu Og fjarskipta ehf. Leigutaki skal gera athugasemd við ástand símtækis við afhendingu telji hann þess þörf. Geri hann það ekki samþykkir hann ástand þess og ber að skila því í sama ástandi og hann tók við því.
  • Leigutaki er ábyrgur fyrir öllu tjóni sem verða kann á símtækinu meðan á leigutíma stendur, eða á meðan það er í vörslu hans. Leigutaki kann einnig að vera ábyrgur fyrir óbeinu tjóni sem leigusali kann að verða fyrir ef tækið skemmist eða eyðileggst á meðan það er í umsjá leigutaka.
  • Leigutaka ber að skila leigðu/lánuðu símtæki til Og fjarskipta ehf. þegar símtæki sem í viðgerð var er afhent leigutaka, og eigi síður en 7 dögum eftir afhendingu. Skili leigutaki ekki búnaði innan tilsettra tímamarka mun leigusali senda leigutaka greiðsluseðil fyrir verðmæti símtækisins, skv. verðskrá leigusala.
  • Ef hluti símtækis eða fylgihlutir þess, t.d. hleðslutæki, skilar sér ekki þarf leigutaki að greiða andvirði þess sem vantar, skv. verðskrá leigusala.

Skilmálar Vodafone vegna viðgerðarsíma:

  • Viðgerð tekur til umbeðinna viðgerða og hugsanlegra hugbúnaðaruppfærslu sé þess þörf að mati tæknimanns. Við hugbúnaðaruppfærslu glatast gögn nema afritunar sé óskað.
  • Ábyrgð á tæki gildir í tvö ár frá kaupdegi og tekur hún einungis til bilana sem rekja má til verksmiðjugalla.
  • Sími er ekki í ábyrgð gegn högg –og rakaskemmdum. Komi slíkar skemmdir í ljós og viðskiptavinur vill ekki greiða fyrir viðgerð, þarf viðskiptavinur alltaf að greiða skoðunargjald. Skoðunargjald er 2.200 kr.
  • Ábyrgðarskírteini þess símtækis sem sent er í viðgerð þarf alltaf að fylgja með.
  • Gögn verða einungis afrituð að beiðni viðskiptavinar og eftir því sem við verður komið tæknilega. Athugið að Vodafone ber enga ábyrgð á gögnum glatist þau við afritun eða með öðrum hætt. Afritun gagna kostar 2.200 kr.
  • Sé tæki ekki sótt innan þriggja mánaða frá verklokum getur Vodafone ekki ábyrgst afhendingu þess.
  • Hreinsunargjald, 5.500 kr., er innheimt þegar um er að ræða hreinsun á síma t.d. vegna bleytu/rakaskemmda. Þetta gjald þarf að greiða hvort sem hreinsun beri árangur eða ekki. Vodafone ber enga ábyrgð á árangri hreinsunarinnar.
  • Vilji viðskipavinur fá flýtimeðferð, er greitt sérstaklega fyrir það 2.200 kr.
  • Vodafone ber enga ábyrgð á minniskortum símtækja skulu þau því ekki fylgja með símtækjum sem fara í viðgerð.
Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn