Lénaskilmálar
- Fjarskipti ehf. og undirritaður rétthafi gera með sér eftirfarandi samning um lénaviðskipti. Fjarskipti ehf. munu tilkynna með hæfilegum fyrirvara um breytingar á skilmálum og þjónustuþáttum.
- Fjarskipti ehf. bera ekki ábyrgð á tjóni sem kann að skapast vegna notkunar á tengingu við internetið eða sambandsleysis við það. Rétthafi ber sjálfur ábyrgð á afritatöku af þeim gögnum sem geymd eru á heimasvæði hans. Fjarskipti ehf. bera ekki ábyrgð á tjóni sem þriðji aðili kann að valda.
- Fyrsta árgjald og stofngjald léns greiða Fjarskipti ehf. til Isnic og gjaldfærir á fyrsta reikning viðskiptavinar samkvæmt verðskrá Isnic hverju sinni.
- Með undirskrift sinni gefur viðskiptavinur, Fjarskiptum ehf. umboð til að sækja um ofangreint lén til Isnic.
- Notkunarskilmálar Isnic gilda ávalt ef samsvarandi ákvæði í skilmálum Fjarskipta ehf. teljast vægari.
- Uppsögn á léni ber að tilkynna til Isnic, sjá reglur www.isnic.is. Einnig ber að viðskiptavini segja upp hýsingu léns skriflega til Fjarskipta ehf.

























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?