Skilmálar um GSM Frelsi
Með virkjun Frelsiskortsins samþykkir notandinn að fara eftir eftirfarandi skilmálum Vodafone:
I. Gildistími inneignar
1. Almenn inneign
Virk inneign - 0-6 mánuðir
Hægt er að fylla á Frelsið beint úr símanum með greiðslukorti, með skafkortum, í heimabönkum, í hraðbönkum, á vef Vodafone eða með því að hringja í 1414. Eftir að Frelsið hefur verið hlaðið er inneignin virk í 6 mánuði frá síðasta rukkaða símtali/SMSi. Þú getur á því tímabili móttekið símtöl þó engin inneign sé eftir.
Óvirk inneign - 6-9 mánuðir
Ef að Frelsisnúmerið hefur ekkert verið notað undanfarna 6 mánuði er lokað fyrir hringingar
frá númerinu. Þú getur þó tekið við símtölum í allt að 3 mánuði.
Ef fyllt er á Frelsið innan 3ja mánaða frá því lokað var fyrir úthringingar er hægt að endurheimta inneignina sem eftir var og opna fyrir úthringingar.
Töpuð inneign - 9-12 mánuðir
Ef ekki er fyllt á Frelsið innan 3ja mánaða frá því lokað var fyrir úthringingar tapast inneignin sem eftir var á Frelsinu og lokað er fyrir alla notkun.
Hægt er að virkja Frelsið með því að fylla á það innan 3ja mánaða frá því lokað var fyrir alla notkun en eldri inneign er fyrnd.
Ef ekki er fyllt á Frelsið innan 3ja mánaða frá því lokað var fyrir alla notkun áskilur Vodafone sér þann rétt að endurheimta símanúmerið og endurúthluta því.
2. Tilboðsinneignir
Tilboðsinneignir og ávinningar þeirra gilda í 30 daga frá því þær voru virkjaðar. Eftir 30 daga fyrnist inneignin, ef einhver er. Inneignir og ávinninga tilboða er ekki hægt að færa á milli númera. Ef númerinu er sagt upp eða það flutt frá Vodafone fyrnast allar inneignir og ávinningar.
3. Krakkafrelsi
Krakkafrelsi er í boði fyrir barn viðskiptavinar í Vodafone Gull með farsíma í áskrift.
Frelsis númer fær 1.500 kr. inneign mánaðarlega. Krakkafrelsið er háð farsímanúmeri í áskrift, ef greiðandi farsíma áskriftar er í vanskilum hjá Vodafone, vanskil telst þegar liðnir eru 30 dagar frá gjalddaga skuldar, virkjast inneignin ekki.
II. Vinaafsláttur
Rafræn áfylling á Frelsi virkjar vinaafslátt í eitt GSM númer Vodafone. Með vinaaflslætti getur notandi talað í allt að 60 mínútur á dag fyrir 0 kr./mín og sent 30 SMS á dag fyrir O kr. í eitt GSM númer Vodafone.
Vinaafslátturinn gildir í 30 daga frá áfyllingu. Ef ekki er fyllt aftur rafrænt á Frelsið innan 30 daga fellur afslátturinn niður.
Notandi þarf að skrá vinanúmer hjá Vodafone til að geta nýtt vinaafsláttinn. Ekki má breyta um vinanúmer fyrr en 30 dögum eftir að fyrra vinanúmer var skráð.
III. Frelsi í útlöndum
Hægt er að nota Frelsi í flestum þeim löndum sem Íslendingar ferðast til. Upplýsingar um í hvaða löndum er hægt að nota Frelsið er að finna á www.vodafone.is/frelsi. Í þessum löndum eru símtöl gjaldfærð á rauntíma, þ.e. um leið og þau eiga sér stað.
Í öðrum löndum þarf að notandi að skrá sig í áskrift til þess að geta notað farsímann þar. Notandi greiðir fyrir notkunina eftir á. Notandi skráir sig í áskrift í verslunum Vodafone eða með því að hringja í Þjónustuver Vodafone. Undirskriftar er krafist, hún getur verið skrifleg eða rafræn. Í áskrift gilda almennir skilmálar um fjarskiptaþjónustu Vodafone.
Það er á ábyrgð notanda að kynna sér verðskrá og hvort hægt sé að nota Frelsið í þeim löndum sem notandi ferðast til.
IV. Önnur ákvæði
Vodafone áskilur sér rétt til að þess að hafa samband við viðskiptavini sína í viðskiptalegum tilgangi, óháð skráningu þeirra í símaskrá. Viðskiptavinum er ávallt heimilt að afþakka slík samskipti af hálfu Vodafone.

























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?