Vodafone Sjónvarp - Hvað má bjóða þér?
Sjónvarpsefni í boði
Grunngjald er greitt mánaðarlega fyrir leigu á myndlyklum Vodafone (sjá verðskrá hér fyrir neðan). Með grunngjaldi Vodafone Sjónvarps fæst aðgangur að opnu stöðvunum auk þess sem dagskrárefni sem sent er út í opinni dagskrá á öðrum stöðvum, svo sem á Stöð 2 og SkjáEinum næst einnig.
Með grunngjaldi Vodafone Sjónvarp Digital fæst aðgangur að RÚV og þess hluta útsendingar Stöðvar 2 og SkjásEins sem er sendur út í opinni dagskrá.
3rd level navigation
Vodafone Sjónvarp
| Tegund tengingar | Stöðvar | Aukalykill | HD |
|---|---|---|---|
| ADSL-tenging | Sjá lista | 1* | Nei |
| Ljósleiðaratenging | Sjá lista | 2 | Já |
| Digital - UHF | Sjá svæði | 1 | Nei |
| Digital - Örbylgja | Sjá svæði | 1 | Já |
*Digital Ísland aukalykill er í boði fyrir ADSL. Nánar um aukamyndlykla.
Endabúnaður sjónvarpsþjónustu
| Endabúnaður sjónvarpsþjónustu | Verð |
|---|---|
| Leiga hefðbundins myndlykils | 590 kr./mán |
| Leiga upptöku- eða háskerpumyndlykils (Digital Ísland) | 1.180 kr./mán |
| Sjálfsábyrgð myndlykils | 14.990 kr. |
| Sjálfsábyrgð fjarstýringar | 990 kr. |
| Sjálfsábyrgð sjónvarpssnúru | 990 kr. |
| Sjálfsábyrgð straumbreytis | 990 kr. |
Áskrift að stöðvum
Viðskiptavinir í Vodafone Gull geta fengið áskrift að stöðvapakkanum Vodafone Erlendar stöðvar í verslunum og þjónustuveri Vodafone, 1414. Í pakkanum eru sex erlendar stöðvar: Fréttastöðin Sky News, DR1 (danska ríkissjónvarpið), barnastöðin JimJam, afþreyingarstöðin BBC Entertainment og fræðslustöðvarnar History Channel og Discovery Channel. Áskriftarverð er 395 krónur á mánuði.
Áskrift hjá Stöð 2 og Skjánum
Áskrift að Stöð 2 og aukastöðvum, sportstöðvum Stöðvar 2 og erlendum sjónvarpsstöðvum (Stöð 2 Fjölvarp) má kaupa í verslunum Vodafone, áskriftarþjónustu Stöðvar 2 í síma 512-5100 og á áskriftarvef Stöðvar 2. Áskrift að SkjáEinum og SkjáGolf má panta á vef Skjásins og í áskriftarsíma Skjásins, 595 6000.
Á áskriftarsíðunni má sjá þá áskriftarpakka sem boðið er upp á. Á þjónustusvæðissíðunni getur þú flett upp hvaða stöðvar eru í boði á þínu byggðasvæði.
Yfir 40 erlendar stöðvar eru seldar í pökkum Stöðvar 2 Fjölvarps
Skoðaðu viðeigandi töflu á áskriftarsíðunni til að sjá hvaða pakkar eru í boði fyrir innlendar og erlendar stöðvar með móttöku með loftneti eða um ADSL- og ljósleiðaratengingar.
Taktu áskriftina með í sumarbústaðinn
Það er hægt að taka Vodafone Digital myndlyklilinn með í sumarbústaðinn eða geyma þar aukalykil svo hægt sé að horfa á sjónvarpið í sveitinni. Ýmsir áskriftarmöguleikar eru í boði - nánari upplýsingar um þá má finna hér. Um leið þarf að tryggja að sumarbústaðurinn sé innan dreifikerfis Vodafone. Skoðið þjónustusvæðissíðuna til að fá upplýsingar um sjónvarpssenda Vodafone eða hafið samband við þjónustuver í síma 1414 til að spyrjast fyrir um einstök svæði.
Opnar stöðvar
RÚV, RÚV+, NOVA TV, Omega, ÍNN, CCTV-9, Alþingi og N4.
Með Vodafone Sjónvarpi um ADSL eða ljósleiðaratengingar eru allar opnar stöðvar aðgengilegar öllum, en með móttöku um loftnet er misjafnt eftir landssvæðum hvaða opnu stöðvar eru í boði.
Áskrift að stöðvum
Með Vodafone Sjónvarpi er hægt að kaupa áskrift að fjölmörgum sjónvarpsstöðvum til viðbótar. Nánari upplýsingar um úrval sjónvarpsefnis í áskrift má sjá á áskriftarsíðunni.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?