Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra.

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Upptökumyndlykill

Athugið - Digital Ísland upptökumyndlykillinn er uppseldur og verður ekki pantaður inn aftur. Eftirfarandi upplýsingar nýtast því einungis þeim sem þegar eiga slíka lykla.
Svona tengirðu upptökumyndlykilinn

Einfaldast er að tengja upptökumyndlykilinn við sjónvarpið þitt með snúru með SCART tengi (hljóð og mynd). Þegar þú hefur kveikt á myndlyklinum og tengt hann þarftu eingöngu að stilla á rétta AV-rás með fjarstýringu sjónvarpsins (SCART tengi sjónvarpstækisins er yfirleitt merkt AV1 eða AV2).

Bakhlið upptökumyndlykilsins
Aðrir tengimöguleikar

Þú getur einnig notað önnur tengi myndlykilsins til að tengja við fleiri tæki, t.d. heimabíóið þitt, vídeótæki eða skjávarpa.

Ef sjónvarpstækið þitt styður tengi sem veita þér betri gæði getur þú notað S-Video eða RGB merki, þú ættir að sjá nokkurn mun, sérstaklega í litum sem verða ekki eins „loðnir“, sér í lagi skærir litir svo sem rauður og appelsínugulur.

  • Composite video (gult RCA tengi) er hægt að tengja í sjónvarpstæki, skjávarpa eða monitor.
  • S-Video tengið (er að vísu merkt S-VHS) gefur enn betri mynd en Composite video tengið því með S-Video er litur (color) og birtustig (luminance) aðskilið í kaplinum (stundum einnig nefnt Y/C merki).
  • Hljóðútgangur með rauðu og hvítu RCA tengi gefur stereo hljóð til að nota með vídeótengjunum hér fyrir ofan eða til að fá hljóð í heimabíóið.
  • S/PDIF gefur stafrænt hljóð (PCM snið) fyrir heimabíókerfi
  • SCART-RGB eru mestu mögulegu gæði sem myndlykillinn býður upp á (meiri gæði en með S-Video). Til að geta notað SCART-RGB verður sjónvarpið þitt að styðja þennan möguleika (stundum bara á öðru SCART tengi sjónvarpsins) og jafnframt verður snúran að styðja RGB. Stilltu á milli Composite, S-Video og RGB fyrir SCART-tengið í Menu > Kerfisstillingar > Skjár > Hljóð/Mynd-úttak (AV).
  • Loftnetstengið sem er í neðri röð og næst miðju er hægt að tengja í sjónvarpstækið. Þá þarf að gera tvennt: tengja loop á ská á milli hinna tveggja tengjanna (fyrir ofan og til vinstri) og láta sjónvarpið framkvæma sjálfvirka leit (stilla inn myndlykilinn), til að aðgreina myndlykilinn frá sjónvarpsstöðvum er ágætt að kveikja á honum og ýta svo á MENU, þá fer ekki á milli mála hvenær myndlykillinn hefur verið settur í rásaminni sjónvarpstækisins.
Svona stillir þú stöðvar inn á myndlykilinn
  1. Þegar PVR lykillinn er fyrst settur í samband, kemur á skjáinn uppsetningarvalmynd þar sem velja þarf viðeigandi tungumál með því að ýta á “OK” takkann á fjarstýringu myndlykils. Velja þarf tungumál fyrir valmynd, hljóð og texta.
  2. Næst þarf að velja staðartíma en þar er valið GMT+0:00 og ýtt á “OK”.
  3. Þegar búið er að velja staðartíma kemur upp gluggi sem heitir “Leita að stöð”. Þar er ýtt á “OK” og síðan þarf að ýta á græna takkann (sort) en þá spyr lykillinn um leitartegund, þá er ýtt á OK takkann og hefst leitin af stöðvum, leitin tekur um það bil 5 – 7 mín.
  4. Þegar leitin er búin kemur á skjáinn “Leit lokið”. Þá þarf að ýta tvisvar sinnum á “OK”. Því næst birtist gluggi sem í stendur “Viltu vista?”. Til þess að vista, þarf að ýta einu sinni á “OK” takkann.
  5. Nú er myndlykillinn tilbúinn og ekkert eftir nema að velja þá stöð sem á að horfa á (t.d. “2” fyrir Stöð 2).
Fjarstýringin fyrir upptökumyndlykil
Fjarstýringin

Ýmsar frekari upplýsingar um móttöku sjónvarps með Vodafone Digital má finna á Spurt og svarað síðum okkar.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn