The Wrestler
| Leikstjóri: | Darren Aronofsky |
| Leikarar: | Mickey Rourke, Marisa Tomei, Evan Rachel Wood |
| Lengd: | 01:45 |
| Flokkur: | Drama, Græna ljósið |
| Verð: | 695 kr. |
| Leyfð: | Bönnuð innan 16 | IMDB einkun: | 8,00 |
|
Mickey Rourke leikur Randy „The Ram“ Robinson, fyrrum fjölbragðaglímukappa sem var frægur á níunda áratugnum en hefur sokkið í svaðið síðan þá. Nú keppir hann um helgar í litlum og illa borguðum bardögum í New Jersey, til að eiga í sig og á, því hann hefur eytt öllum þeim peningum sem hann eignaðist á frægðardögum sínum. Þegar honum býðst að keppa á ný við frægasta mótherja sinn frá níunda áratugnum, Ayatollah, með von um væna greiðslu nái hann að sigra, sér hann loks möguleika á að snúa við blaðinu. Það reynist þó erfiðara en að segja það að breyta gömlum siðum og koma sér á rétt ról, hvað þá komast í nógu gott form til að geta sigrað öflugan mótherjann. |
|
| Skoða sýnishorn | |
| Sjá nánar: | |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?