The Invincible Iron Man
| Leikstjóri: | Patrick Archibald |
| Leikarar: | Marc Worden, Gwendoline Yeo, Fred Tatasciore |
| Lengd: | 01:23 |
| Flokkur: | Ævintýri |
| Verð: | 695 kr. |
| Leyfð: | Bönnuð innan 12 | IMDB einkun: | 6,00 |
|
Fortíð og nútíð rekast á í þessu hetjulega ævintýri sem flettir hulunni af upphafi Járnmannsins. Þegar milljarðamæringurinn og uppfinningamaðurinn Tony Stark er að grafa upp fornar rústir ævaforns kínversks konung-dæmis leysir hann úr læðingi fornan spádóm sem boðar endurkomu Mandarínsins, keisara myrkustu og ofbeldis-fyllstu keisaraættar Kína. Til að takast á við þessi tortímigar-öfl býr Tony til brynvarinn búning sem inniheldur alls kyns hátæknivopn. Til að stöðva illu öflin sem hann gróf upp þarf Tony að verða merkasta uppfinning sín - Járnmaðurinn! Þessi nýfæddi riddari þarf að ferðast út um allan heim til að berjast við útsendara Mandarínsins, Höfuðskepnurnar, fjóra töfrum gædda stríðsmenn sem búa yfir mætti náttúruaflanna - jörð, vatn, vindur og eldur - með banvænum afleiðingum. En er Járnriddarinn, eins og hann kallast í spádóminum, nógu sterkur til að sigrast á örlögunum og senda þessi vítisöfl aftur til síns heima? |
|
| Sjá nánar: | |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?