Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Toolbox

Main

The Great Buck Howard

poster
Upprunalegur titill: The Great Buck Howard
Leikstjóri: Sean McGinly
Leikarar: John Malkovich, Colin Hanks, Emily Blunt, Steve Zahn, Tom Hanks
Lengd: 01:26
Flokkur: Gaman, Nýtt
Verð: 695 kr.
Leyfð: - Öllum aldurshópum
IMDB einkun: 6,80

The Great Buck Howard er stjörnum prýdd gamanmynd með John Malkovich, Colin Hanks, Emily Blunt og Tom Hanks í aðalhlutverkum.

Buck Howard (John Malkovich) hefur eytt megninu af ævi sinni í sviðsljósinu. Sjónhverfingar og hugarbrellur hans ollu því til dæmis að hann kom hvorki meira né minna en 61 sinni fram í kvöldþætti Johnny Carson og lítur Buck á sig sem mun meira en venjulegan töframann, því hann getur lesið hugsanir og dáleitt heilu salina af fólki.

Því miður hefur aðdráttarafl sýninga hans dvínað í gegnum árin og er augljóst fyrir öllum (nema Buck) að atriðin sem hann framkvæmir heilla fólk ekki lengur.

Þegar hinn ungi Troy Gable (Colin Hanks), sem er nýhættur í laganámi, fær vinnu sem aðstoðarmaður Bucks breytist líf þeirra beggja til frambúðar. Með aðstoð fjölmiðlafulltrúans Valerie Brennan (Emily Blunt) kemst Buck aftur í sviðsljósið, en það verður þó ekki átakalaust, hvorki fyrir Buck né fólkið í kringum hann.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn