Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Sveitabrúðkaup

Plakat
Leikstjóri: Valdís Óskarsdóttir
Leikarar: Björn Hlynur Haraldsson, Ingvar E Sigurðsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir
Lengd: 01:35
Flokkur: Gaman, Íslenskt
Verð: 595 kr.
Leyfð: Öllum aldurshópum

Inga og Barði hafa ákveðið að giftast eftir þriggja ára sambúð. Athöfnin á að fara fram í lítilli sveitakirkju rúmlega klukkutíma keyrslu frá Reykjavík. Inga vill halda í gamlar hefðir og hefur ákveðið að brúðguminn fái ekki að líta brúðina augum fyrr en við altarið. Svo Inga, Barði og gestirnir – það er að segja fjölskyldur, nánir vinir og ekkert sérstaklega nánir og frekar óvelkomnir vinir, leggja af stað í tveimur rútum með kampavín og brúðartertu í farangrinum.

Enginn veit nákvæmlega hvar kirkjan er nema Barði sem fékk leiðbeiningar hjá séra Brynjólfi í gegnum síma og það virtist vera tiltölulega bein og auðrötuð leið. Þegar komið er að Hvalfjarðargöngunum kemur í ljós að Barði er með innilokunarkennd og getur ekki farið göngin svo þau keyra Hvalfjörðinn. Komin að Ferstiklu uppgötvar liðið að þau eru á eftir áætlun og ákveða að stytta sér leið yfir Dragháls.

Komin útaf þjóðvegi 1 þar sem merkingar eru fáar eða engar er auðvelt að villast þekki maður ekki fjöll eða áttir og á endanum eru brúðkaupsgestirnir rammvilltir og hátíðarskapið sem lagt var upp með á hraðri niðurleið.

Skoða sýnishorn
Sjá nánar:
Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn