Stóra Planið
| Leikstjóri: | Ólafur Jóhannesson |
| Leikarar: | Pétur Jóhann Sigfússon, Eggert Þorleifsson, Benedikt Erlingsson, Jón Gnarr, Ingvar E. Sigurðsson, Michael Imperioli |
| Lengd: | 01:26 |
| Flokkur: | Gaman, Íslenskt |
| Verð: | 495 kr. |
| Leyfð: | Öllum aldurshópum |
|
Davíð, sem er misskilinn handrukkari og listamaður, hættir með kæurstunni og flytur loksins í sína eigin íbúð. Þar kynnist hann dularfullum leigusala, Haraldi Haraldssyni grunnskólakennara. Þegar kennarinn kemst að því að Davíð vinnur með handrukkaragengi umbreytist hann í umsvifamikinn huldumann í íslenskum glæpaheimi og virðist til alls líklegur. Um sama leyti fær Davíð enn einu sinni að kenna á virðingarleysi samstarfsmanna sinna og stríðni og ákveður í hita leiksins að ljóstra upp um samskipti sín við hinn ókunna glæpakóng. Gamalreyndir fantar í hópnum þykjast vita að hér sé kominn sjálfur Mexíkó Haraldur, annálaður krimmi sem í áraraðir hefur verð geymdur í Suður- amerísku fanglesi. Við þessar fréttir breytist Davíð úr hirðfíflinu í sjálfan lykilmanninn í handrukkaragenginu, þennan sem allir reiða sig á í hinu óhjákvæmilega uppgjöri við ógnvaldinn Harald. Frábær íslensk kvikmynd með frábærum hópi leikara þar á meðal Michael Imperioli úr The Sopranos. |
|
| Skoða sýnishorn | |
| Sjá nánar: | |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?