Righteous Kill
| Leikstjóri: | Jon Avnet |
| Leikarar: | Robert De Niro, Al Pacino, 50 Cent |
| Lengd: | 01:36 |
| Flokkur: | Drama, Spenna |
| Verð: | 495 kr. |
| Leyfð: | Bönnuð innan 16 | IMDB einkun: | 6,10 |
|
Óskarsverðlaunahafarnir Robert De Niro og Al Pacino leika tvo New York rannsóknarlögreglumenn sem hafa starfað saman í 30 ár. Það er komið að eftirlaunum þegar þeir þurfa að rannsaka eitt mál í viðbót, morð á illræmdum vændissala. Morðið virðist tengjast öðru máli sem þeir félagar leystu fyrir mörgum árum því í báðum tilfellum hefur morðinginn skilið eftir ljóð til útskýringar á morðunum. Þegar fleiri tengd mál koma uppá yfirborðið vaknar grunur um að hér sé á ferðinni raðmorðingi en fórnarlömbin virðast eingöngu vera glæpamenn sem hafa smogið framhjá armi laganna. verksummerkin í nýju málunum líkjast hins vegar óþægilega mikið eldra málinu svo lögreglumennirnir fara að spyrja sig hinnar áleitnu spurningar, settu þeir rangan mann í fangelsi? |
|
| Skoða sýnishorn | |
| Sjá nánar: | |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?