Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Inkheart

Plakat
Upprunalegur titill: Inkheart
Leikstjóri: Iain Softley
Leikarar: Brendan Fraser, Paul Bettany, Andy Serkis, Eliza Bennett
Lengd: 01:42
Flokkur: Ævintýri
Verð: 695 kr.
Leyfð: Öllum aldurshópum
IMDB einkun: 6,00

Inkheart er ævintýramynd með Brendan Fraser, Paul Bettany, Helen Mirren, Andy Serkis og Elizu Bennett í aðalhlutverkum.

Segir myndin frá Mortimer „Mo“ Folchart (Fraser) og dóttur hans, hinni 12 ára gömlu Meggie (Bennett), en þau hafa bæði mikla ástríðu fyrir bókum. Það er ekki það eina sem þau eiga sameiginlegt, því þau búa einnig bæði yfir þeim einstaka hæfileika að gæða persónur lífi þegar þau lesa upphátt um þær. Þegar þau lífga við ævintýrapersónu hverfur aftur á móti raunveruleg persóna inn í ævintýraheim bókarinnar á móti.

Þegar þau eru að skoða sig um í bókabúð með notaðar bækur rekst Mo skyndilega á gamla bók sem hann hefur leitað að síðan Meggie var þriggja ára gömul, ævintýrabókinni Inkheart, en Resa (Sienna Guillory), móðir Meggie, festist inni í heimi þeirrar bókar.

Mo setur saman áætlun um að ná móður sinni aftur til baka úr bókinni, en þau áform taka nýja stefnu þegar illmennið Capricorn (Serkis) rænir Meggie og reynir að fá hana til að gæða illskeytta félaga sína lífi, til að taka yfir okkar heim, með alvarlegum afleiðingum.

Skoða sýnishorn
Sjá nánar:
Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn