He's Just Not That Into You
| Upprunalegur titill: | He's Just Not That Into You |
| Leikstjóri: | Ken Kwapis |
| Leikarar: | Ben Affleck, Drew Barrymore, Jennifer Aniston |
| Lengd: | 02:04 |
| Flokkur: | Gaman, Rómantík |
| Verð: | 695 kr. |
| Leyfð: | Bönnuð innan 12 | IMDB einkun: | 6,50 |
|
Rómantíska gamanmyndin He’s Just Not That Into You er vægast sagt stjörnum hlaðin, en Ben Affleck, Jennifer Aniston, Drew Barrymore, Scarlett Johansson, Justin Long, Jennifer Connelly, Ginnifer Goodwin og margir fleiri fara með hlutverk í myndinni. Myndin er í raun margar minni sögur og segir hún frá skakkaföllum nokkurra mismunandi manneskja sem tengjast öll einhvern veginn. Í kjarna sögunnar er Gigi (Goodwin), ung kona sem les sífellt vitlaust í öll merki sem karlmenn gefa henni um áhuga sinn á henni, með hrikalegum afleiðingum fyrir einkalífið. Einnig kynnumst við hjónunum Janine (Connelly) og Ben (Bradley Cooper), sem eru að ganga í gegnum erfitt tímabil í sambandi sínu og blandast hin fagra Anna (Johansson) inn í líf þeirra, sem sjálf er að reyna að losna úr sambandi. Svo eiga Neil (Affleck) og Beth (Aniston) í eigin erfiðleikum, því þegar Beth biður Neil um að giftast sér og Neil neitar, lendir samband þeirra í hættu. Þær ákvarðanir sem persónurnar taka í sínu eigin einkalífi hafa undantekningarlaust áhrif á einhvern annan, ýmist með hlægilegum eða átakanlegum afleiðingum. |
|
| Skoða sýnishorn | |
| Sjá nánar: | |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?