Gosi
| Leikstjóri: | Selma Björnsdóttir |
| Leikarar: | Víðir Guðmundsson, Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Aðalbjörg Árnadóttir, Jóhann Sigurðsson |
| Lengd: | 01:42 |
| Flokkur: | Barnaefni, Ævintýri, Íslenskt |
| Verð: | 495 kr. |
| Leyfð: | Öllum aldurshópum |
|
Allir þekkja ævintýrið um Gosa. Tréskurðarmaðurinn barnslausi, Jakob, hittir á óskastund og fær ósk sína uppfyllta um að eignast lítinn dreng. Þarna reynist vera ótaminn og óstýrilátur spýtustrákur, Gosi að nafni. Hann óhlýðnast föður sínum og í stað þess að mæta í skólann stefnir Gosi á vit vafasamra ævintýra sem reka hann á ótrúlegustu staði. Með þátttöku í ævintýrunum skerpist samviska hans, hann lærir, þroskast og í lokin fórnar hann lífi sínu fyrir föður sinn. En vegna ástarinnar sem feðgarnir bera hvor til annars öðlast Gosi nýtt líf, raunverulegt hjarta sem slær og von um innhaldsríka ævi. |
|

























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?