Domino
| Leikstjóri: | Tony Scott |
| Leikarar: | Mickey Rourke, Keira Knightley, Edgar Ramirez, Lucy Liu |
| Lengd: | 00:00 |
| Flokkur: | Spenna |
| Verð: | 695 kr. |
| Leyfð: | Bönnuð innan 16 | IMDB einkun: | 5,90 |
|
Víðfræg saga Domino Harvey, fyrrverandi fyrirsætu sem gerðist mannaveiðari, verður goðsagnakennd í þessari spennumynd Tony Scott ( True Romance, Man on Fire). Myndin hefst á því að Domino (Knightley) situr blóðug í yfirheyrslu hjá FBI fulltrúanum Taryn Miles ( Lucy Liu) og segir henni sögu sína. Eftir lát föður hennar, leikarans Laurence Harvey úr the Manchurian Candidate, verður Domino harðskeytt ung kona sem æfir bardagalistir við rándýra sundlaug móður sinnar og er ekkert lamb að leika sér við. Henni leiðist glysið í LA og skráir sig á mannaveiðaranámskeið. Í kjölfarið gengur hún í lið með kennurunum, harðnaglanum Ed Moseby (Rourke) og Choco (Ramires), hvatvísum töffara sem fellur fyrir henni. Þegar yfirmaður þeirra skipuleggur flókna svikamyllu til að hafa efni á sjúkrakostnaði dóttur sinnar fer jafnvægi þríeykisins úr skorðum. |
|
| Skoða sýnishorn | |
| Sjá nánar: | |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?