| Leikstjóri: | Gil Kenan |
| Lengd: | 01:35 |
| Flokkur: | Barnaefni, Ævintýri |
| Verð: | 595 kr. |
| Leyfð: | Öllum aldurshópum |
|
Leikstjóri Monster House, Gil Kenan, situr við stjórnvölin á þessari ævintýramynd um tvær ungar hetjur sem gera allt sem í þeirra valdi stendur til að leysa ráðgátu neðanjarðarborgarinnar þeirra sem er við það að sveipast í myrkur. Borgin var byggð fyrir rúmum 200 árum, djúpt undir yfirborði jarðar þar sem harmleikir að ofan ná ekki til. Útbúin gríðarstórum rafali og nógum birgðum hefur borgin lifað við allsnægtir um áraraðir en borginni var þó ekki ætlað að endast að eilífu. Rafallinn er að skemmast og birgðirnar fara þverrandi. Alvarlegast er þó að aldirnar tvær hafa rænt þekkingunni, enginn veit lengur hvernig rafmagnsljósin sem lýsa borgina virka og hvað fleir er til staðar en myrkrið. Enginn nema Lina og Doon, tveir unglingar sem enn hafa vonina sem flestir hafa misst í djúp fáfræði og eirðarleysis auk þess að hafa leiðbeiningar, þó laskaðar séu, frá forfeðrunum um hvernig skuli yfirgefa borgina. Með það að hættu að borgin verðu hugsanlega skilin eftir í algjöru myrkri leggja Lina og Doon saman í hættuför um öngstræti borgarinnar ti að finna lausnina sem gæti bjargað henni. |
|
| Skoða sýnishorn | |
| Sjá nánar: | http://www.imdb.com/title/tt0970411/ |
Sett bókamerki þegar hentar, t.d. ef einhver sofnar eða bregður sér frá
Horft á myndina í 48 klst
Hindrað að börn horfi á erótískt efni
Skoðað úrvalið án þess að það trufli sjónvarpsáhorf
Séð sýnishorn úr og lesið um myndirnar
Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.