Anna og Skapsveiflurnar
| Leikstjóri: | Gunnar Karlsson |
| Leikarar: | |
| Lengd: | 00:27 |
| Flokkur: | Barnaefni |
| Verð: | 495 kr. |
| Leyfð: | Öllum aldurshópum | IMDB einkun: | 7,00 |
|
Dag einn vaknar fullkomna stúlkan Anna upp með einhvern hræðilegan sjúkdóm. Hún er döpur eftirlíking af Marilyn Manson og er hræðilega mislynd. Foreldrar Önnu eru ráðþrota og fara með hana á Meðferðarstofnun Artmanns læknis fyrir óstýrilát börn. Þar fer hún greiningarpróf í völundarhúsi hins brjálaða læknis. Niðurstaðan reynist ekki sú sem foreldrar Önnu höfðu óskað sér! Gunnar Karlsson er leikstjóri myndarinnar. Tónlist er samin af Julian Nott og flutt af Brodsky kvartettinum. Hilmar Sigurðsson og Arnar Þórisson eru framleiðendur myndarinnar sem er unnin af CAOZ, sem framleiddi Litlu lirfuna ljótu – fyrstu íslensku tölvugerðu teiknimyndina. Anna og skapsveiflurnar hlaut EDDU verðlaunin sem besta stuttmyndin. Myndin hefur verið sýnd og unnið til viðurkenninga á kvikmyndahátíðum um allan heim. |
|
| Sjá nánar: | |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?