Anastasía
| Leikstjóri: | . |
| Leikarar: | Inga María Valdimarsdóttir, Rósa Guðný Þórisdóttir, Hjálmar Hjálmarsson |
| Lengd: | 00:55 |
| Flokkur: | Barnaefni |
| Verð: | Frítt |
| Leyfð: | Öllum aldurshópum |
|
Þegar rússneska keisarafjölskyldan, Romanov, er myrt af bolsévikum lifir einn fjölskyldumeðlimurinn, Anastasía prinsessa, það af. Í skjóli myrkurs er hún numin meðvitundarlaus á brott af Leon, traustum vini fjölskyldunnar. Hann kemur henni í umsjón bændahjónanna Borisar og Gregoríu Poplovich. Þegar Anastasía kemst til meðvitunar þjáist hún af minnisleysi. Aðeins gimsteinsegg í hendi hennar gefur vísbendingar um fortíð hennar. Meðan Boris er henni góður, ætlar Greorgía sér að nota hana sem vinnukonu. Hún skrökvar því að Anatasíu að hún sé dóttir hennar og setur hana þegar í vinnu. Dag einn á göngu í skóginum með yrðlinginn sinn hittir Anastasía Alexander. Hann hjálpar henni að flýja hina harðbrjóstu Gregoríu og uppgötva hennar raunverulega uppruna. Skyndilega komast bolsévikar á slóð hennar samkvæmt ábendingum frá Gregoríu. Þau Alexander verða að dulbúa sig og flýja í baráttu við erfiðar aðstæður og bolsévikana sem fylgja þeim fast eftir, ef þau eiga að komast í frelsið, yfir austurísku landamærin. |
|
| Sjá nánar: | |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?