American Teen
| Leikstjóri: | Nanette Burstein |
| Leikarar: | Hannah Bailey, Colin Clemens, Megan Krizmanich, Mitch Reinholt, Jake Tusing |
| Lengd: | 00:00 |
| Flokkur: | Fræðsla |
| Verð: | 695 kr. |
| Leyfð: | Bönnuð innan 12 |
|
American Teen er heimildarmynd um raunverulega táninga í raunverulegum menntaskóla í Bandaríkjunum. Táningarnir sem fylgst er með eru í menntaskóla í smábæ í Indiana, og eru allir á lokaári sínu. Hannah Bailey er ein þeirra, gáfuð og falleg stúlka en passar ekki alveg inn í samfélagið. Hún er frjálslyndur trúleysingi á meðan flestir í bænum eru mjög trúaðir og íhaldssamir, en hana dreymir um að flytja til Kaliforníu eftir útskrift. Colin Clemens er stjarnan í körfuboltaliðinu sem allt snýst um í bænum. Colin er undir mikilli pressu að standa sig og færa ekki aðeins bænum titil heldur sjálfum sér skólastyrk í háskóla. Jake Tusing er nördinn í hópnum, hrikalega feiminn á almannafæri en leynir á sér. Þessar manneskjur og fleiri þurfa að komast áfallalaust í gegnum lokaárið, en það er hægara sagt en gert í þessum skrautlega skóla. |
|
| Skoða sýnishorn | |
| Sjá nánar: | |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?