The Matador
| Leikstjóri: | Richard Shepard |
| Leikarar: | Pierce Brosnan, Greg Kinnear, Hope Davis, Philip Baker Hall, Adam Scott |
| Lengd: | 01:33 |
| Flokkur: | Spenna, Gaman |
| Verð: | 495 kr. |
| Leyfð: | Bönnuð innan 16 | IMDB einkun: | 8,14 |
|
Pierce Brosnan slær í gegn sem leigumorðingi á ystu nöf í þessari dimmu gamanmynd Richards Shepard. Eftir að hafa leikið hina snyrtilegu og teprulegu James Bond og Remington Steele er Brosnan hér kominn í hlutverk Julians Noble, úrsérgengins leigumorðingja sem eyðir öllum sínum frítíma í fyllerí og kvennafar. Hann kynnist Danny Wright (Greg Kinnear) í Mexíkó, en hann er meðaljón sem reynir að landa mikilvægum viðskiptasamningi. Julian öfundar Danny af einföldu lífi hans og reynir að vingast við hann, mann sem giftist kærustunni sinni úr framhaldsskóla (Hope Davis) en missti son sinn í hræðilegu slysi. Einn daginn, á nautaati, segir Julian Danny hvert starf hans sé en Danny trúir honum ekki, þar til Julian sannar það fyrir honum. |
|
| Skoða sýnishorn | |
| Sjá nánar: | |


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?