Skoppa og Skrítla í húsdýragarðinum
| Leikstjóri: | Hrefna Hallgrímsdóttir |
| Leikarar: | Hrefna Hallgrímsdóttir, Linda Ásgeirsdóttir |
| Lengd: | 00:35 |
| Flokkur: | Barnaefni, Nýtt |
| Verð: | 395 kr. |
| Leyfð: | Öllum aldurshópum |
|
Börn eru fovitin að eðlisfari. Þau heillast af því sem þau sjá og heyra í kringum sig. Fyrstu árin notar barnið hverja mínútu til að upplifa veröldina í kringum sig. Í þessari mynd er leitast við að örva hugarheim barnsins á skapandi hátt. Skoðaður er heimur íslensku húsdýranna með Skoppu og Skrítlu og hópi barna á aldrinum 2-9 ára. Hópurinn hitir hin ýmsu dýr á milli þess sem hann leikur sér og sprellar við tónlist sem allir þekkja. Skoppa og Skrítla eru furðuverur sem koma frá Ævintýralandi. Í Ævintýraland ikeppast allir við að vera glaðir, góðir og guðdómlegir. Tónlist er þar öllum í blóð borin og stiginn er dans allan daginn alla daga. Skoppa og Skrítla eru komnar til að kæta hjörtu allra barna. |
|


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?