Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Toolbox

Main

Heimur farfuglanna

poster
Leikstjóri: Jacques Perrin
Leikarar: -
Lengd: 01:38
Flokkur: Fræðsla, Nýtt á Leigunni
Verð: 595 kr.
Leyfð: - Öllum aldurshópum
IMDB einkun: 7,90

Þessi stórmerkilega heimildarmynd hefur notið gríðarlegra vinsælda um allan heim en í henni er áhorfendum hreinlega boðið í flug með farfuglum heimsins á milli áfangastaða og til að kynnast lífi þeirra svo að segja frá þeirra eigin sjónarhóli. Aðalhöfundur myndarinnar er Jacques Perrin, en hann gerði m.a. einnig hina frábæru mynd Microcosmos sem fjallaði um heim skordýranna og naut mikilla vinsælda hér á landi sem annars staðar. Til að gera stórvirkið Heim farfuglanna mögulegt kallaði Perrin til liðs við sig fimm hópa 450 manna og kvenna, þar á meðal 14 kvikmyndatökumenn og 17 flugmenn, til að fylgja eftir hinu leyndardómsfulla ferðalagi farfugla heimshorna á milli og var myndin tekin upp í meira en 40 löndum í öllum heimsálfum, þar á meðal Íslandi, á þriggja ára tímabili. Ekkert var til sparað og öllu tjaldað til svo ná mætti sem bestum myndum af fuglunum og vera eins nálægt þeim og mögulegt er. Útkoman er líka svo stórkostleg að áhorfandanum finnst sem hann sé í raun á meðal fuglanna og fljúgi með þeim í háloftunum. Myndin hlaut Césarinn 2002 fyrir bestu klippingu, Golden Reel - æðstu verðlaun hljóðmanna. Þá hefur myndin verið tilnefnd víðsvegar, m.a. til Óskarsverðlauna, Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna ofl.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn