Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Toolbox

Main

Furry Vengeance

Leikstjóri: Roger Kumble
Leikarar: Brendan Fraser, Wallace Shawn, Jim Norton, Ken Jeong, Brooke Shields, Rob Riggle, Matt Prokop, Angela Kinsey, Skyler Samuels, Ricky Garcia
Lengd: 01:32
Flokkur: Gaman, Nýtt
Verð: 695 kr.
Leyfð: Blandað
IMDB einkun: 3,00

Furry Vengeance er fjölskyldugrínmynd með Brendan Fraser í aðalhlutverki, en hann fer hér með hlutverk Dan Sanders. Dan þessi vinnur sem byggingastjóri sem fær það verkefni frá yfirmanni sínum, Neal Lyman (Ken Jeong), að breyta skóglendi nokkru í íbúðahverfi. Sonur Dans, Tyler (Matt Prokop) og eiginkonan Tammy (Brooke Shields) eru afar ósátt við verkefnið sem fjölskyldufaðirinn fær, þar sem þau telja bæði að vernda eigi skóginn í stað þess að höggva hann niður og ræna öll dýrin þar heimilum sínum.

Hins vegar eru dýrin sjálf með sína áætlun og Dan hefur varla hafist handa við framkvæmdirnar þegar þau snúa vörn í sókn og byrja að hrella hann með hverri vel skipulagðri aðgerðinni á eftir annarri. Á sama tíma er Tammy að skipuleggja náttúruverndarhátíð og til að flækja málin ákveður fyrirtæki Lymans að styrkja hátíðina til að bæta sína eigin ímynd...

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn