Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Toolbox

Main

Crazy, Stupid, Love.

Leikstjóri: John Requa, Glenn Ficarra
Leikarar: Julianne Moore, Kevin Bacon, Marisa Tomei, John Carroll Lynch, Ryan Gosling, Steve Carell, Emma Stone, Joey King, Crystal Reed, Julianna Guill
Lengd: 01:58
Flokkur: Drama, Gaman, Rómantík, Nýtt
Verð: 695 kr.
Leyfð: Bannað innan 12 ára
IMDB einkun: 7,50

Cal Weaver er í góðri vinnu, á fallegt hús og frábæra krakka með konu sem hann elskar. Því miður er sú kona, Emily ekki sammála um að allt sé draumi líkast og biður um skilnað. Cal veit ekki hvaðan á hann stendur veðrið. Í stefnumótaheiminum er hann hin versta risaeðla og gæti ekki verið óliprari í aðförum sínum við hitt kynið. Hann eyðir öllum lausum stundum á hverfisbarnum þar sem þrítugi glaumgosinn Jacob tekur hann upp á arma sína og gerir hann að höslfélaga. Hann tekur hann í yfirhalningu og reynir að fá hann til að lifa lífinu á ný. Þeir tveir eru ekki þeir einu sem leita ástarinnar á röngum stöðum; þrettán ára sonur Cal er yfir sig skotinn í sautján ára barnapíu sinni, Jessicu, en hún er sjálf skotin í Cal. Jacob fellur óvænt fyrir Hönnuh, stelpu sem kærir sig kollótta um sjarma hans en gefur honum alltént séns. Og þrátt fyrir að hafa skipt um útlit til að næla sér í píur hefur Cal ekki tekist að skipta út raunverulegum tilfinningum sínum. En svona er ástin, brjáluð og heimsk.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn