Á bakvið tjöldin með Lalla töframanni
| Leikstjóri: | . |
| Leikarar: | Lalli Töframaður |
| Lengd: | 01:04 |
| Flokkur: | Fræðsla, Nýtt |
| Verð: | 495 kr. |
| Leyfð: | Öllum aldurshópum |
|
Í þessari mynd kennir Lalli Töframaður ýmis töfrabrögð sem hann hefur verið að sýna t.d. á árshátíðum, í barnaafmælum eða hvar sem er. Öll töfrabrögðin eru einföld og framkvæmd með hlutum sem má finna á flestum heimilum, t.d. blöðru, klút, pening, tegju, bolla eða spilum. Töfrabrögðin henta öllum aldurshópum og þessi mynd er tilvalin fyrir alla þá sem langar að kunna og geta sýnt vinum sínum og fjölskyldu töfrabrögð. Lalli Töframaður hefur sýnt töfrabrögð út um allar trissur í mörg ár, enda byrjaði áhuginn þegar hann var aðeins 6 ára gamall. Síðan þá hefur hann lært hin ótrúlegustu brögð, bæði stór og smá. Nú er hann búinn að tína til um 20 flott töfrabrögð til þess að kynna þér heim töfranna. |
|


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?