88 Minutes
| Leikstjóri: | Jon Avnet |
| Leikarar: | Al Pacino, Alicia Witt, Leelee Sobieski |
| Lengd: | 01:35 |
| Flokkur: | Spenna |
| Verð: | 595 kr. |
| Leyfð: | Bönnuð innan 16 | IMDB einkun: | 5,00 |
|
Óskarsverðlaunahafinn Al Pacino (The Godfather, Devil’s Advocate) leikur Jack Gramm, háskólaprófessor í afbrotasálfræði sem aðstoðar Alríkislögregluna oft við rannsóknir. Hann ber vitni í máli raðmorðingjans Jons Forster (Neal McDonough úr Minority Report) sem, vegna Gramm, er dæmdur sekur og hlýtur dauðadóm. Á deginum sem aftakan á að fara fram fær Jack símtal og er honum sagt að hann eigi aðeins 88 mínútur ólifaðar, og um leið koma upp á yfirborðið ný morðmál sem bera öll einkenni hins dauðadæmda Jons Forster. Jack þarf því að komast að því hver stendur að baki hótuninni og morðunum. Á meðal grunaðra eru einn nemenda hans, fyrrum ástkona hans og svo raðmorðinginn sjálfur, sem á að taka af lífi innan skamms. Leikstjórinn er Jon Avnet (Red Corner, Fried Green Tomatoes), og er handritið skrifað af Gary Scott Thompson, sem hefur áður skrifað hasarmyndir á borð við Hollow Man og The Fast and the Furious, þannig að hér vantar ekki hæfileikafólk á bakvið myndavélina fremur en fyrir framan. Auk Al Pacino og Neal McDonough leika Leelee Sobieski (The Glass House), Alicia Witt (Urban Legend) og Amy Brenneman (Heat) stór hlutverk í 88 Minutes, sem er spennandi ráðgátu- og hasarmynd fyrir alla aðdáendur Al Pacino. |
|
| Skoða sýnishorn | |
| Sjá nánar: | |

























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?