Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra.

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Upplifðu háskerpu

Um miðjan október 2007 hófust útsendingar í háskerpu (HD) á örbylgjuútsendingarsvæði Digital Ísland. Með útsendingu í háskerpu er myndin á skjánum sett saman úr margfalt fleiri dílum (pixels) en í venjulegu sjónvarpi (PAL). Dílarnir fara úr 414.720 í 2.073.600. Þetta þýðir að myndin verður miklu skarpari og öll smáatriði mun skýrari.

HD sjónvarpsútsendingar

Háskerpuútsendingar Digital Ísland nást á örbylgjuloftnet og CAM-sjónvarpskort á Suðvesturhorni landsins (sama svæði og yfir 70 stöðvar hafa verið í boði um árabil).

Nú er hægt að ná HD-útsendingum með þremur mismunandi leiðum. Gegnum ljósleiðaratengingu, með CAM-sjónvarpskorti og Digital Ísland HD myndlykil. Athugið að Digital Ísland HD-myndlykillinn er uppseldur og verður ekki pantaður inn aftur. Þeir sem ekki eru þegar með slíkan lykil hafa því möguleika á að ná HD-útsendingum með annars vegar ljósleiðaratengingu og hins vegar CAM-sjónvarpskorti.

Gjald fyrir HD myndlykil er skv. verðskrá, en einnig þarf að kaupa áskrift að þeim stöðvum sem senda út í háskerpu.

Hvaða efni er í boði?

Með HD myndlykli frá okkur, áskrift að sportstöðvum Stöðvar 2 og HD áskriftar hjá Stöð 2 að auki (sjá nánar) nást tvær HD stöðvar; Stöð 2 Sport HD (sjá beinar útsendingar) og National Geographic HD. Ekki er hægt að kaupa áskrift að Nat Geo HD án sportstöðva.

Skilyrði fyrir móttöku með HD-lykli

  • Örbylgjuloftnet
  • Háskerpusjónvarp (Full HD eða HD ready)
  • HD myndlykill
  • Tengja HD myndlykil með Component (3xRCA) eða HDMI

Hvernig virkar HD?

Mynd á sjónvarpsskjám er sett saman úr mörgum örsmáum ferningum, sem kallaðir eru pixlar. Pixlarnir raðast saman á ákveðin hátt og mynda saman eina heild.

Í háskerpusjónvarpi er myndin á skjánum sett saman úr margfalt fleiri pixlum en í venjulegu sjónvarpi, sem þýðir að myndin verður miklu skarpari og öll smáatriði mun skýrari. Rétt er að árétta, að munurinn á myndgæðum í venjulegu sjónvarpi og háskerpusjónavarpi verður því greinilegri eftir því sem tækin eru stærri.

Útsendingar HD stöðva eru í 1080i (interlaced), en þú getur auðvitað líka notið aukinna myndgæða með HD ready sjónvarpstæki.

Beinar útsendingar í HD

Dagsetning Leikur Keppni
Lau 11. feb 12:15 Man. Utd. - Liverpool Enska úrvalsdeildin
Lau 11. feb 14:45 Everton - Chelsea Enska úrvalsdeildin
Lau 11. feb 17:15 Tottenham - Newcastle Enska úrvalsdeildin
Sun 12. feb 13:20 Wolves - WBA Enska úrvalsdeildin
Sun 12. feb 15:45 Aston Villa - Man. City Enska úrvalsdeildin
Sun 12. feb 20:20 Real Madrid - Levante Spænski boltinn
þri 14. feb 19:30 Bayer Leverkusen - Barcelona Meistaradeild Evrópu
Mið 15. feb 16:55 Zenit St. Petersburg - Benfica Meistaradeild Evrópu
Mið 15. feb 19:30 AC Milan - Arsenal Meistaradeild Evrópu
þri 21. feb 16:50 CSKA Moskva - Real Madrid Meistaradeild Evrópu
þri 21. feb 19:30 Napoli - Chelsea Meistaradeild Evrópu
Mið 22. feb 19:30 Basel - Bayern München Meistaradeild Evrópu
Lau 25. feb 14:45 Chelsea - Bolton Enska úrvalsdeildin
Lau 25. feb 17:15 Man. City - Blackburn Enska úrvalsdeildin
Lau 25. feb 20:50 Spænski boltinn Spænski boltinn
Sun 26. feb 13:00 Arsenal - Tottenham Enska úrvalsdeildin
Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn