Við hönnun á viðmótinu var lögð mikil vinna í auðvelt og þægilegt aðgengi að dagskrárupplýsingum sjónvarpsstöðva og einfalt viðmót myndleigunnar. Meðal þess sem var haft að leiðarljósi er að viðmótið leggst alltaf „ofan á“ stöðina sem horft er á, leiðbeiningar eru ávallt um notkun litahnappanna og að hægt er að skoða myndir á Leigunni í lista eða með plakötum.
Sjáðu alla dagskrá stöðvanna út frá sjónvarpsstöð, tímaás eða í fleka - þægilegra en nokkru sinni.
Á tímaásnum sérð þú hvað klukkan er núna með gulu röndinni.
Þú missir ekki af neinu með ótakmörkuðum fjölda áminninga. Smelltu einfaldlega á bláa hnappinn.
Áminningin birtist á skjánum nokkrum sekúndum áður en dagskrárliðurinn hefst.
Þú notar bara 10 hnappa til að stjórna öllu viðmótinu. Fjórir litahnappar, fjórir örvahnappar, MENU og OK hnappurinn. Það er allt og sumt. Þú getur alltaf lokað með því að smella á þann rauða.
Þegar þú horfir á mynd getur þú stillt bókamerki með gula hnappinum.
Ef einhver í fjölskyldunni sofnar yfir myndinni, þá heldur þú bara áfram að horfa.
Þótt þú kíkir inn í Leiguna eða skoðir dagskránna þá heldur sjónvarpsmyndin áfram að spilast í bakgrunni.
Ekkert vesen.
Í stillingum viðmótsins getur þú valið hvort íslenskur texti er með á myndinni sem þú horfir á eða ekki.
Þitt er valið.
Við bjóðum tvenns konar valmynd sem er sniðin að tvenns konar myndflötum, annars vegar 4:3 fyrir gömlu góðu kassalaga sjónvörpin en einnig 16:9 viðmót sérsniðið að sjónvörpum í breiðtjaldssniði.
Þú sérð meira með 16:9 viðmótinu.
Sjáðu sýnishorn (trailer) myndanna á leigunni áður en þú leigir þær. Þú getur horft á eins mörg sýnishorn og þú vilt.
Um leið og spilun stöðvast er skipt sjálfkrafa yfir á stöðina sem þú varst með stillt á.
Í Leigunni getur þú valið hvort þú skoðar plakötin (eins og úti á leigu) eða lista af nöfnum myndanna.
Þú skiptir á milli með bláa hnappinum, einfaldara gæti það ekki verið.
Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.