Vodafone.is - Uppsetning (um ADSL)

Uppsetning AmiNET110 myndlykils

Búnaðinum fylgir smásía, netsnúra (rauð) og símasnúra (svört). Ef þú óskar eftir að hafa tölvuna þína tengda beint við ADSL búnaðinn án þess að nota þráðlaust net er það gert eins og sést á myndinni hér að neðan. Smásían gegnir því hlutverki að sía burt ADSL hljóð sem heyrast á símalínunni eftir að ADSL hefur verið tengt á hana. Því er nauðsynlegt að smásíur séu til staðar við öll símtæki, posa og faxtæki sem eru í notkun.

Athugið að smásíuna á ekki að setja á símasnúruna sem tengist í ADSL búnaðinn því þá næst ekki ADSL samband.

Þegar ADSL tengingin þín er orðin virk og búið að tengja tölvu og ADSL búnað eins og hér að neðan ættir þú að komast vandræðalaust á netið.

Sjónvarp

  1. Amino myndlykill er tengdur með scartsnúru í sjónvarp en einnig loftnetssnúru fyrir önnur sjónvörp.
  2. Ef ADSL beinir er kominn á netið, þá er hægt að tengja netsnúru frá Amino myndlykli í rauf 4 á ADSL búnaðinum. Við þetta þá á að loga ljós á port 4.
  3. Nú þarf að setja myndlykil í samband við rafmagn. Nota bene, passið að víxla EKKI saman straumbreyti myndlykils og straumbreyti beinis.
  4. Núna ætti að birtast merki Vodafone á sjónvarpinu og ræsing tekur 2-4 mínútur.
    a. Ef hvítur skjár birtist, með Opera valmynd, þá þarf að athuga hvort það sé örugglega ADSL samband á beini og að það logi ljós á porti 4 á ADSL búnaðinum.
    b. Prufa má að endurræsa bæði ADSL búnaðinn og myndlykilinn einu sinni, ef það virkar ekki þá þarf að hafa samband við þjónustuver Vodafone, 1414. Til að endurræsa myndlykil, þarf að taka hann úr sambandi frá rafmagni. Byrjaðu á að endurræsa ADSL búnaðinn, eftir u.þ.b. 2 mínútur skaltu endurræsa myndlykilinn.
  5. 5. Ef óskað er eftir fleiri sjónvarpsrásum þá verður að hafa samband við þjónustuver 365 miðla, í síma 5125100.

Bakhlið Amino myndlykils

  1. Rafmagnstengi
  2. Netsnúra sem tengist úr porti fjögur í beini.
  3. USB tengi (ekki notað).
  4. S/P-DIF stafrænn hljóðútgangur
  5. AV útgangur í sjónvarp (mini-din). Snúra fylgir fyrir SCART tengingu, en einnig er hægt að fá snúru með S-Video og Composite (gult RCA) tengi.
  6. Útgangur fyrir loftnetssnúru beint í sjónvarp eða inn á innanhúskerfi.
    Hægt er að nota þetta tengi til að dreifa merki í annað sjónvarp, en AV útgangur er líka notaður.
  7. Inngangur fyrir loftnetssnúru sem liggur í loftnet á þaki.
    Hægt er að láta myndlykil senda frá sér loftnetsmerki til sjónvarps.

MINI-DIN tengið

Aftan á AmiNET110 myndlyklinum er MINI-DIN tengi fyrir hljóð og mynd. Hér getur þú séð hvaða tengi ber hvaða mynd- og hljóðstraum.

Pin Composite/RGB S-video S-video alternative
1 Audio Left Audio Left Audio Left
2 RGB status
3 Composite VBS Luminance Luminance
4 Audio GND Audio GND Audio GND
5 Video status video status
6 Red Chrominance
7 Video GND Video GND Video GND
8 Audio Right Audio Right Audio Right
9 Green Synchro+Luminance
10 Blue

Mínar síður


Spurt og svarað

Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.

Fannstu það sem þig vantaði?

Hvernig finnst þér þessi síða?
Hvað getum við bætt?

Sendu okkur nafnlausa ábendingu* við þessa síðu, hvað finnst þér vanta eða vera óljóst?


Útskýrðu ítarlega hverju þú leitaðir að, svo við getum bætt síðuna.

Senda

Þú þarft ekki að skrifa neitt í reitinn, en verður að ýta á takkann!

Ef þú hefur spurningu eða vantar upplýsingar skaltu hafa samband við þjónustuver.

*IP talan þín er skráð en ekki er hægt að rekja athugasemdina til þín út frá henni.

Tungumál