Vodafone.is - HD útsending

Promo header

Upplifðu háskerpu

Um miðjan október 2007 hófust útsendingar í háskerpu (HD) á örbylgjuútsendingarsvæði Digital Ísland. Með útsendingu í háskerpu er myndin á skjánum sett saman úr margfalt fleiri dílum (pixels) en í venjulegu sjónvarpi (PAL). Dílarnir fara úr 414.720 í 2.073.600. Þetta þýðir að myndin verður miklu skarpari og öll smáatriði mun skýrari.

Njóttu þess að horfa á valda leiki í enska boltanum og Discovery HD í bestu mögulegu myndgæðum með nýjum háskerpumyndlykli frá Vodafone.

Hægt er að nálgast HD myndlykil og áskrift í verslunum okkar á höfuðborgarsvæðinu.

Enski boltinn og Meistaradeildin

Auk áskriftar af Discovery Channel HD er hægt að fá Stöð 2 Sport í háskerpu. Mánaðargjald fyrir Enska boltann og Meistaradeildina í háskerpu er samkvæmt gjaldskrá 365 miðla. Viðskiptavinir Vodafone sem panta Stöð 2 Sport HD hjá 365 miðlum fá kynningarrás í háskerpu í kaupbæti.

7. nóv 17:30 Wolves - Arsenal
8. nóv 13:30 Hull - Stoke
8. nóv 16:00 Chelsea - Man Utd.
8. nóv 20:00 Liverpool - Birmingham
21. nóv 12:45 Liverpool - Man City
21. nóv 17:30 Man Utd - Everton
22. nóv 13:30 Bolton - Blackburn
22. nóv 16:00 Stoke - Portsmouth
24. nóv 19:45 UEFA Champions League
25. nóv 19:45 UEFA Champions League
28. nóv 17:30 Aston Villa - Tottenham
29. nóv 13:30 Everton - Liverpool
29. nóv 16:00 Arsenal - Chelsea
5. des 12:45 Portsmouth - Burnley
5. des 17:30 Man City - Chelsea
6. des 16:00 Everton - Tottenham
8. des 19:45 UEFA Champions League
9. des 19:45 UEFA Champions League

Skilyrði fyrir móttöku

  • Ljósleiðaratenging
  • Háskerpusjónvarp (Full HD eða HD ready)
  • HD myndlykill
  • Tengja HD myndlykil með Component (3xRCA) eða HDMI

Útsendingarsvæði

Vodafone Digital + HD myndlykilinn er hægt að tengja alls staðar þar sem ljósleiðaratenging Gagnaveitu Reykjavíkur er í boði.

Þú einfaldlega skiptir um myndlykil og tengir við sjónvarpið þitt með HDMI eða component tengi og þá getur þú upplifað Discovery Channel HD og Stöð 2 Sport HD heima í stofu.

Hvernig virkar HD?

Mynd á sjónvarpsskjám er sett saman úr mörgum örsmáum ferningum, sem kallaðir eru pixlar. Pixlarnir raðast saman á ákveðin hátt og mynda saman eina heild.

Í háskerpusjónvarpi er myndin á skjánum sett saman úr margfalt fleiri pixlum en í venjulegu sjónvarpi, sem þýðir að myndin verður miklu skarpari og öll smáatriði mun skýrari. Rétt er að árétta, að munurinn á myndgæðum í venjulegu sjónvarpi og háskerpusjónavarpi verður því greinilegri eftir því sem tækin eru stærri.

Mínar síður


Spurt og svarað

Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.

Fannstu það sem þig vantaði?

Hvernig finnst þér þessi síða?
Hvað getum við bætt?

Sendu okkur nafnlausa ábendingu* við þessa síðu, hvað finnst þér vanta eða vera óljóst?


Útskýrðu ítarlega hverju þú leitaðir að, svo við getum bætt síðuna.

Senda

Þú þarft ekki að skrifa neitt í reitinn, en verður að ýta á takkann!

Ef þú hefur spurningu eða vantar upplýsingar skaltu hafa samband við þjónustuver.

*IP talan þín er skráð en ekki er hægt að rekja athugasemdina til þín út frá henni.

Tungumál