
Með Digital Ísland upptökumyndlyklinum getur þú tekið stjórnina á sjónvarpinu þínu. Þú getur sett á pásu þegar þú horfir á sjónvarpið og spólað fram og til baka í upptökunni. Horfðu á tvær stöðvar í einu með mynd-í-mynd (tveir móttakarar) og færðu myndina til á skjánum eins og þér hentar. Stilltu upptöku fram í tímann og horfðu á upptekið efni allt að þremur vikum síðar.
Upptökulykillinn er einnig með frábæru yfirliti yfir dagskránna hverju sinni með svokallað EPG-grid. Kíktu á skjámyndirnar hér fyrir neðan.
Upptökumyndlykllinn kostar 920 kr. pr/mán. - þú greiðir aðeins fyrir leigu á myndlyklinum.
Einfaldast er að tengja upptökumyndlykilinn við sjónvarpið þitt með snúru með SCART tengi (hljóð og mynd). Þegar þú hefur kveikt á myndlyklinum og tengt hann þarftu eingöngu að stilla á rétta AV-rás með fjarstýringu sjónvarpsins (SCART tengi sjónvarpstækisins er yfirleitt merkt AV1 eða AV2).
Þú getur einnig notað önnur tengi myndlykilsins til að tengja við fleiri tæki, t.d. heimabíóið þitt, vídeótæki eða skjávarpa.
Ef sjónvarpstækið þitt styður tengi sem veita þér betri gæði getur þú notað S-Video eða RGB merki, þú ættir að sjá nokkurn mun, sérstaklega í litum sem verða ekki eins „loðnir“, sér í lagi skærir litir svo sem rauður og appelsínugulur.
Loftnetstengið sem er í neðri röð og næst miðju er hægt að tengja í sjónvarpstækið. Þá þarf að gera tvennt: tengja loop á ská á milli hinna tveggja tengjanna (fyrir ofan og til vinstri) og láta sjónvarpið framkvæma sjálfvirka leit (stilla inn myndlykilinn), til að aðgreina myndlykilinn frá sjónvarpsstöðvum er ágætt að kveikja á honum og ýta svo á MENU, þá fer ekki á milli mála hvenær myndlykillinn hefur verið settur í rásaminni sjónvarpstækisins.
Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.
Þú færð aðstoð í síma 1414. Kíktu á spurt og svarað eða sendu okkur fyrirspurn.