Áskriftarskilmálar um sjónvarpsdreifingu Vodafone
Kæri viðskiptavinur!
Við hvetjum þig til þess að kynna þér vel skilmála áskriftarsamningsins. Slíkt fyrirbyggir misskilning og stuðlar að greiðum og góðum samskiptum í framtíðinni. Eftirfarandi skilmálar gilda um áskrift að sjónvarpsdreifikerfi Vodafone (Og fjarskipti ehf.) og er bæði áskrifendum og öðrum notendum hennar skylt að hlíta þessum skilmálum.
-
Vodafone veitir áskrifenda aðgang að sjónvarpsdreifkerfi sem áskrifandi er greiðandi að hverju sinni.
-
Vodafone leigir áskrifanda nauðsynlegan búnað sem er myndlykill og fjarstýring. Starfsmenn félagsins og þjónustufulltrúar þess hafa rétt á að fá búnaðinn afhentan til skoðunar og yfirferðar. Vodafone kann að vilja skipta út myndlykli sínum hjá áskrifenda eftir því sem að tækniþróun eða aðrar ástæður gefa tilefni til. Um slíkan búnað og meðferð hans gilda þessir skilmálar, nema þess sé sérstaklega getið í nýjum samningi.
2.1 Áskrifanda er ekki heimilt að leyfa öðrum að nota búnaðinn með því að selja, leigja, gefa eða láta hann af hendi með öðrum hætti.
2.2 Áskrifanda er óheimilt að gera eða láta gera nokkrar breytingar á búnaðinum. Óheimil meðferð myndlykla er refsiverð skv. 28. gr. og 33. gr. útvarpslaga nr. 53/2000.
2.3 Áskrifanda er óheimilt að tengja búnaðinn við sjónvarpstæki utan skráðs notkunarstaðar hans. Þó er áskrifanda heimilt að nota búnaðinn á tímabundnum dvalarstað, svo sem í sumarbústað (háð dreifileið).
2.4 Áskrifanda er óheimilt að taka upp efni úr dagskrá einstakra miðla nema til einkaafnota á skráðum notkunarstað áskriftarbúnaðarins.
2.5 Rof innsiglis á myndlykli skoðast sem uppsögn á áskriftarsamningnum.
-
Vodafone er heimilt að bjóða upp á áskriftarsamninga þar sem áskrifandi skuldbindur sig í sex mánuði. Samningurinn er óuppsegjanlegur innan samningstímabilsins. Greidd áskrift er ekki afturkræf. Áskrifandi greiðir alltaf að lágmarki grunnáskriftargjald Vodafone á meðan að samningur er í gildi og/eða búnaði hefur ekki verið skilað. Áskriftarsamningur fellur úr gildi þegar áskrifandi skilar áskriftarbúnaðinum að áskriftartímabili loknu.
3.1 Leigu búnaðar, áskrift og seðilgjald hvers mánaðar ber áskrifanda að greiða fyrir fram samkvæmt þeirri gjaldskrá sem í gildi er á hverjum tíma hjá Vodafone.
- Áskrifandi getur óskað eftir að fá aukamyndlykil til notkunar á sama stað og sá myndlykill er sem hann hefur fyrir. Fjöldi aukamyndlykla er háður dreifileið.
4.1 Áskrifandi getur óskað eftir að fá upptökumyndlykil (háð dreifileið).
4.2 Við móttöku auka- eða upptökumyndlykils greiðir áskrifandi stofngjald skv. gjaldskrá Vodafone. Stofngjaldið er ekki endurkræft við skil búnaðarins.
4.3 Áskrifandi greiðir mánaðargjald skv. gjaldskrá Vodafone fyrir afnot sín af auka- eða upptökumyndlykli.
-
Vodafone er eigandi búnaðarins og ber áskrifanda að gæta hans og fara vel með hann. Glatist búnaðurinn eða sé honum stolið ber áskrifanda að greiða andvirði búnaðarins til Vodafone samkvæmt gjaldskrá félagsins.
5.1 Sé búnaðinum stolið ber áskrifanda að tilkynna það tafarlaust til Vodafone og lögreglu.
5.2 Áskrifandi greiðir ábyrgðargjald til Vodafone, skv. gjaldskrá félagsins, sem innheimt er einu sinni á ári af öllum myndlyklum til þess að standa undir kostnaði félagsins af þjónustu vegna bilunar eða galla í áskriftarbúnaði.
5.3 Bili búnaður eða reynist í honum galli lætur Vodafone áskrifanda í té nýjan búnað honum að kostnaðarlausu, enda komi áskrifandi bilaða búnaðinum til Vodafone eða þjónustufulltrúa félagsins á sinn kostnað.
5.4 Áskriftarskilmálar Vodafone gilda um nýjan búnað eða hluta hans sem áskrifandi fær afhentan í stað bilaðs eða gallaðs búnaðar.
-
Hætti áskrifandi að greiða áskrift eða leigu áður en samningstíma lýkur skv. 3. gr. er Vodafone heimilt að stöðva útsendingar á sjónvarpsþjónustu til áskrifandans. Áskrifandinn skal engu að síður greiða umsamið áskriftargjald út samningstímann auk kostnaðar sem kann að hljótast af innheimtu þess.
6.1 Segi áskrifandi upp áskrift eða greiði hann ekki áskriftargjaldið eftir að samningstíma lýkur ber honum að skila áskriftarbúnaðinum til félagsins eða þjónustufulltrúa þess.
- Kjósi áskrifandi sem greiðir áskriftargjaldið reglulega, með greiðslukorti eða beingreiðslu, að gera breytingar á áskrift, hvort heldur er varðandi samsetningu áskriftar sem greitt er fyrir eða greiðslumáta áskriftargjaldsins, ber honum að tilkynna slíkar breytingar til Vodafone. Tilkynning þarf að berast eigi síðar en 13. dag næsta mánaðar á undan þeim mánuði sem breytingunum er ætlað að taka gildi.
-
Vodafone ber ekki ábyrgð á því, þótt útsending rofni um stund en mun í slíkum tilvikum ávallt leitast við að koma útsendingu í lag á ný. Vodafone ábyrgist ekki tjón sem rekja má til sambandsleysis, rofs á útsendingu eða annarra truflana sem kunna verða á sjónvarpsdreifikerfinu.
8.1 Móttökubúnaður er ábyrgð áskrifenda og því getur Vodafone ekki ábyrgst gæði móttökuskilyrða.
8.2 Vodafone ber á engan hátt ábyrgð á innihaldi og útsendingu sjónvarpsefnis þess sem sent er um sjónvarpsdreifikerfi Vodafone.
-
Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum er Vodafone heimilt, án fyrirvara, að stöðva útsendingu á sjónvarpsþjónustu til hans og krefjast tafarlausra skila á áskriftarbúnaðinum og greiðslu skaðabóta.
-
Vodafone áskilur sér rétt til þess að breyta áskriftarskilmálum. Breytingar skulu kynntar áskrifendum með að minnsta kosti eins mánaðar fyrirvara á heimasíðunni www.vodafone.is/digitalisland
-
Mál út af samningi þessum má reka fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur.
-
Með undirskrift sinni á áskriftarsamning og móttöku búnaðarins skuldbindur áskrifandi sig til að hlíta þeim skilmálum sem Vodafone setur um aðgang áskrifanda að sjónvarpsdreifikerfi. Greiðsla á áskriftargjaldi eftir móttöku búnaðar á heimili áskrifanda jafngildir undirskrift áskriftarsamnings. Við gerð nýs áskriftarsamnings fellur úr gildi eldri samningur um sama áskriftarbúnað sé hann til staðar.
Áskriftarskilmálar þessir gilda frá 1.desember 2007