Vodafone.is - HD útsending

Promo header

Háskerpa á Digital Ísland

Um miðjan október 2007 hófust útsendingar í háskerpu (HD) á örbylgjuútsendingarsvæði Digital Ísland. Með útsendingu í háskerpu er myndin á skjánum sett saman úr margfalt fleiri dílum (pixels) en í venjulegu sjónvarpi (PAL). Dílarnir fara úr 414.720 í 2.073.600. Þetta þýðir að myndin verður miklu skarpari og öll smáatriði mun skýrari.

Njóttu þess að horfa á valda leiki í enska boltanum og National Geographic HD í bestu mögulegu myndgæðum með nýjum háskerpumyndlykli frá Vodafone.

Hægt er að nálgast HD myndlykil og áskrift í verslunum okkar á höfuðborgarsvæðinu.

Skilyrði fyrir móttöku

  • Örbylgjuloftnet
  • Háskerpusjónvarp (Full HD eða HD ready)
  • HD myndlykill
  • Tengja HD myndlykil með Component (3xRCA) eða HDMI

Enski boltinn og Meistaradeildin

Auk áskriftar af Discovery Channel HD er hægt að fá Stöð 2 Sport í háskerpu. Mánaðargjald fyrir Enska boltann og Meistaradeildina í háskerpu er samkvæmt gjaldskrá 365 miðla. Viðskiptavinir Vodafone sem panta Stöð 2 Sport HD hjá 365 miðlum fá kynningarrás í háskerpu í kaupbæti.

14. ágúst 11:45 Tottenham - Man City
15. ágúst 15:00 Liverpool v Arsenal
16. ágúst 19:00 Man Utd - Newcastle
21. ágúst 16:15 Wigan - Chelsea
22. ágúst 13:00 Fulham - Man Utd

Hvernig virkar HD?

Mynd á sjónvarpsskjám er sett saman úr mörgum örsmáum ferningum, sem kallaðir eru pixlar. Pixlarnir raðast saman á ákveðin hátt og mynda saman eina heild.

Í háskerpusjónvarpi er myndin á skjánum sett saman úr margfalt fleiri pixlum en í venjulegu sjónvarpi, sem þýðir að myndin verður miklu skarpari og öll smáatriði mun skýrari. Rétt er að árétta, að munurinn á myndgæðum í venjulegu sjónvarpi og háskerpusjónavarpi verður því greinilegri eftir því sem tækin eru stærri.

Útsendingarsvæði

Háskerpuútsendingar Digital Ísland munu í fyrstu nást á örbylgjuloftnet á Suðvesturhorni landsins og fljótlega á Akureyri.

Eftirfarandi byggðarsvæði ná háskerpuútsendingu:
Reykjavík, Seltjarnarnes, Vogar, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Bessastaðahreppur, Keflavík, Grindavík, Njarðvík, Mosfellsbær, Akranes, Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn, Eyrarbakki, Stokkseyri.

Mínar síður


Spurt og svarað

Ertu í vanda eða vantar þig hjálp? Hér eru algengar spurningar og svör.

Tungumál