Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Taktu myndlykilinn með í sumarbústaðinn

Með Vodafone Digital Ísland myndlykli er hægt að ná sjónvarpsmerki í sumarbústaðinn. Ýmist er hægt að taka með sér lykil að heiman eða fá annan lykil hjá okkur til að hafa í sumarbústaðnum.

Þeir sem eru með sjónvarp um ADSL eða ljósleiðara geta fengið Digital Ísland sumarbústaðalykil, en athugið að ekki er hægt að taka Amino-myndlyklana fyrir sjónvarp um ADSL eða ljósleiðara með í sumarbústaðinn.

Til að opna á áskriftina í sumarbústaðnum er um nokkra möguleika að velja.

Áður en lagt er af stað að heiman þarf að muna að taka með sér Vodafone Digital myndlykilinn, fjarstýringu fyrir myndlykilinn og skarttengi. Í sumarbústaðnum þarf að vera UHF greiðuloftnet og sjónvarp til að fá áskriftina inn.

Eftirfarandi áskriftarleiðir eru í boði fyrir sumarbústaðaráskriftir:

1. Taka með sér Digital lykil að heiman í bústaðinn og áskriftakortið úr honum.

  • Kostnaður: Enginn
  • Láta lykilinn leita sjálfvirkt þegar búið er að tengja hann
  • Leita aftur þegar komið er heim.

2. Hafa leigulykil í bústaðnum og fara með áskriftakortið með sér í sumarbústaðinn (Einungis fyrir viðskiptavini með Digital Ísland heima).

  • Kostnaður: Leigugjald 590 kr. á mánuði
  • Myndlykillinn í sumarbústaðnum verður að vera skráður á sömu kennitölu og lykillinn heima.
  • Kortið sett í lykilinn og áskriftin dettur inn allt að 30 mínútum seinna.
  • Muna að taka kortið með sér aftur heim.

3. Færa áskrift á milli lykla (vera með myndlykil í sumarbústaðnum).

  • Kostnaður: Leigugjald 590 kr. á mánuði
  • Hringja í áskriftardeild Stöðvar 2 (s. 5125100 og velja 1) til að færa áskriftina að heiman í sumarbústaðinn.

4. Þriggja daga opnun (vera með myndlykil í sumarbústaðnum).

  • Kostnaður: 1090 kr. v. áskriftar + leigugjald 590 kr. á mánuði
  • Hringja í áskriftardeild Stöðvar 2 (s. 5125100 og velja 1) og kaupa opnun í þrjá daga.
  • Lykillinn er opinn heima á meðan.

5. Föst helgaráskrift (vera með myndlykil í sumarbústaðnum)

  • Kostnaður: 2.040 kr. v. áskriftar + leigugjald 590 kr. á mánuði
  • Hringja í áskriftardeild Stöðvar 2 (s. 5125100 og velja 1) og kaupa helgaráskrift.
  • Opnast sjálfkrafa á myndlykilinn á föstudögum og lokast á sunnudögum.
  • Lykillinn er opinn heima á meðan.

Tengingar og leit að stöðvum:

Tengja loftnetið efst til vinstri í Ant-In og skartsnúru úr neðra skarttenginu á lyklinum í sjónvarpið. Næst þarf að láta lykilinn leita sjálfvirkt að sjónvarpsstöðvum. Nánari leiðbeiningar má finna hér.

Þegar búið er að vista stöðvarnar og setja kortið í lykilinn þá getur tekið allt að 30 mín fyrir lykilinn til að sækja stöðvarnar.

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn