Vodafone Erlendar stöðvar - hagstæðasti áskriftarpakkinn!
Vodafone Erlendar stöðvar er sex stöðva áskriftarpakki sem býðst eingöngu viðskiptavinum í Vodafone Gull. Allir viðskiptavinir geta hins vegar keypt áskrift að Fjölvarpi Stöðvar 2 með yfir 40 erlendum stöðvum. Lestu meira um Fjölvarp Stöðvar 2 á áskriftarsíðunni.
Vodafone Erlendar stöðvar er einn hagstæðasti áskriftarpakki erlendra stöðva sem völ er á. Fyrir einungis 395 kr. á mánuði fást sex af vinsælustu erlendu sjónvarpsstöðvunum sem í boði eru hér á landi.
Vodafone Erlendar stöðvar bjóðast viðskiptavinum í Vodafone Gull sem fá sjónvarp gegnum ljósleiðara eða ADSL (IPTV) eða eru með Digital Ísland-áskrift um örbylgju (á Suðvesturhorni landsins). Því miður er ekki hægt að bjóða pakkann á þeim svæðum sem hafa einungis aðgang að UHF-dreifikerfi Vodafone. Sjá nánari upplýsingar um þjónustusvæði Vodafone Sjónvarps.
Til að vera í Vodafone Gull þarftu að vera með a.m.k. þrjár áskriftarleiðir í farsíma, heimasíma, interneti og sjónvarpi innan fjölskyldunnar hjá Vodafone.
Ert þú í Vodafone Gull? Þú getur pantað Vodafone Erlendar stöðvar með því að hringja í 1414, pantað símtal, komið á netspjallið eða bara sent okkur eitt einfalt SMS í 1414.
Sjónvarpsstöðvar
-
DR 1
Aðalsjónvarpsstöð danska ríkisútvarpsins er uppáhaldsstöð margra. Þetta er gæðastöð fyrir þá sem vilja fylgjast með fréttum, afþreyingu og öðru gæðaefni frá Danmörku.
Skoða dagskrá Sky News
Sky News er fréttastöð Sky-sjónvarpsstöðvar-innar. Þar er fylgst með gangi heimsmálanna allan sólarhringinn og að sjálfsögðu sagt frá því helsta sem gerist í íþróttunum.
Skoða dagskrá-
History
Á History er lögð áhersla á að segja sögur úr fortíðinni, bæði vel þekktar og þær sem eru síður kunnar. Grípandi söguþráður og spennandi framsetning eru aðalsmerki stöðvarinnar.
Skoða dagskrá
BBC Entertainment
BBC Entertainment sýnir fyrsta flokks breska skemmtiþætti allan sólarhringinn. Þar má finna nýja þætti á borð við Top Gear og sígilda þætti eins og Allo Allo og Fawlty Towers.
Skoða dagskrá-
Discovery Channel
Discovery Channel er ekki bara fræðandi heldur líka einstaklega skemmtileg. Þættir á borð við Mythbusters, Man vs. Wild og American Chopper hafa náð gríðarvinsældum og ekki að ástæðulausu.
Skoða dagskrá -
Jim Jam
JimJam leggur sérstaka áherslu á fræðandi og skemmtilegt sjónvarpsefni fyrir yngstu börnin. Bubbi Byggir, risaeðlan Dorothy og mörgæsin Pingu eru meðal þeirra sem gleðja börnin.
Skoða dagskrá
Stillingar á stöðvum
Hafir þú pantað áskrift þarftu að framkvæma ákveðnar aðgerðir til að fá stöðvarnar inn:
Viðskiptavinir með sjónvarp um örbylgju þurfa að framkvæma nýja stöðvaleit á lyklinum. Leiðbeiningar um hvernig það er gert má finna á hjálparvef Vodafone.
Viðskiptavinir með sjónvarp um ADSL eða ljósleiðara þurfa að endurræsa myndlykla sína, en það er gert með því að taka þá úr sambandi við rafmagn.


























Hér erum við líka:
Fréttabréf
Viltu fá gagnlegt fréttabréf annað slagið?