Nettengingar í hæsta gæðaflokki:

Þú færð 3G net um allt land, ADSL í flestum þéttbýliskjörnum og ljósleiðara í nokkrum bæjarfélögum og á höfuðborgarsvæðinu.

Hafðu óhikað samband við okkur til að fá ráðgjöf eða spyrja okkur spurninga.

Þín bíða ánægjulegar stundir við sjónvarpið

Skoðaðu dagskrá vinsælustu stöðvanna með því að smella á logo þeirra:

Fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki

 

Vodafone veitir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við finnum réttu lausnirnar fyrir þínar þarfir!

Hjálpin er nær

Hefurðu einhverjar spurningar um þjónustu eða vörur Vodafone? Hér finnur þú svörin við flestum þeim algengustu.

Reikningar

Allt sem tengist reikningum: Inniheimtuferli, reikningstímabil, útskriftargjald, greiðslufrestur og fleira.

Þjónustusvæði heimasíma

Allir viðskiptavinir í Vodafone Gull hringja fyrir 0 kr./mín og án upphafsgjalda í alla aðra heimasíma á Íslandi (1000 mínútur).

Þjónustusvæði heimasíma Vodafone um kopar

Stór höfuðborgarsvæðið (að Kjalarnesi undanskildu), Akranes, Akureyri, Álftanes, Borgarnes, Dalvík, Egilsstaðir, Grindavík, Húsavík, Hveragerði, Höfn í Hornafirði, Ísafjörður, Njarðvík, Reykjanesbær, Sandgerði, Sauðárkrókur, Selfoss, Vestmannaeyjar og Þorlákshöfn eru innan heimasvæðis Vodafone. Vodafone innheimtir mánaðargjöld og gjöld fyrir notkun á því svæði.

Þjónustusvæði heimasíma Vodafone um ljósleiðara

Einnig er hægt að fá heimasíma yfir ljósleiðara. Hægt er að fá ljósleiðara víða á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Akureyri, Hellu, Hvolsvelli, Sauðárkróki og Öræfum. Fletta þarf upp sérstaklega hvort þitt heimili sé tengt. Meira um ljósleiðara Vodafone hér.

Aðrir staðir eru utan heimasvæðis okkar og fer þá heimasímaþjónusta Vodafone um grunnnet Mílu. Mánaðargjaldið og sérþjónustugjald er innheimt af Símanum, en gjald fyrir almenna notkun er innheimt af Vodafone. Það geta því allir landsmenn verið með heimasímann hjá Vodafone og notið okkar góðu kjara og þjónustu.

Önnur þjónustusvæði

Netspjall / Panta símtal / Fyrirspurn